Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Teymisstjóri hjúkrunar Droplaugarstöðum

Droplaugarstaðir er Eden vottað hjúkrunarheimili með áherslu á heimilislegt umhverfi og sjálfsákvörðunarrétt íbúa.

Droplaugarstaðir eru með virkt gæðakerfi og fengu ISO vottun árið 2020 fyrst hjúkrunarheimila á Íslandi. Í stefnu heimilisins eru öryggi, virkni og vellíðan íbúa, starfsfólks og fjölskyldna í öndvegi.

Við leggjum áherslu á metnað í starfi, fagleg vinnubrögð og samvinnu íbúa og starfsfólks.

Íbúar eru 87 á fjórum deildum. Við erum staðsett í hjarta Reykjavíkur og stutt í almenningssamgöngur.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með og fagleg ábyrgð á hjúkrunarþjónustu á sinni hæð
  • Skipuleggur daglegt starf á sinni hæð
  • Vinnur samkvæmt markmiðum, hugmyndafræði og gæðastefnu heimilisins
  • Ber ábyrgð á og skipuleggur störf annarra starfsmanna. Útdeilir verkefnum í samræmi við hjúkrunarþarfir íbúa og ber ábyrgð á að þeim störfum sé framfylgt
  • Ber ábyrgð á og leysir úr þeim starfsmannamálum sem upp koma hverju sinni. Greinir þörf á þeim starfsmannamálum sem þurfa frekari úrvinnslu og beinir þeim til hjúkrunarstjóra og upplýsir
  • Ber ábyrgð á og metur þörf á stuðningi, fræðslu og upplýsingastreymi til aðstandenda. Sinnir fjölskylduviðtölum og stuðningsviðtölum til aðstandenda eftir þörfum
  • Er til aðstoðar hjúkrunarstjóra í umsjón þeirra mála sem hjúkrunarstjóri felur starfsmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hjúkrunarfræðingur með íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Íslenskukunnátta á stig C2 í samræmi við samevrópskan tungumálaramma
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði í starfi, þolinmæði og jákvætt viðhorf
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
  • 36 klst. vinnuvika
  • Reykjavíkurkort skv. reglum Reykjavíkurborgar
  • Samgöngusamningur skv. reglum Reykjavíkurborgar
  • Líkamsræktarstyrkur skv. reglum Reykjavíkurborgar
Utworzono ofertę pracy16. September 2026
Termin nadsyłania podań30. September 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Snorrabraut 58, 105 Reykjavík
Rodzaj pracy
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe