Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur í tímabundið starf - Heilsugæslan Mosfellsumdæmi

Heilsugæslan Mosfellsumdæmi leitar að hjúkrunarfræðingi í tímabundið starf í eitt ár. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. desember nk. eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Við leitum að hjúkrunarfræðingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg verkefni á spennandi vettvangi sem er í sífelldri þróun. Lögð er áhersla á þverfaglega og góða samvinnu fagstétta með hag skjólstæðingsins að leiðarljósi. Margvísleg tækifæri og spennandi tímar eru framundan í nýju húsnæði með góðri vinnuaðstöðu.

Meginstarfssvið er skólaheilsugæsla og móttaka. Um er að ræða spennandi starfsvettvang fyrir hjúkrunarfræðinga sem hafa áhuga á að starfa með börnum og taka þátt í þróun heilsugæsluhjúkrunar.

Heilsugæslan Mosfellsumdæmi þjónar fyrst og fremst íbúum í Mosfellsbæ, á Kjalarnesi, í Kjós og nágrenni en öllum er frjálst að skrá sig á stöðina.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

Opin og bókuð hjúkrunarmóttaka   

Í móttöku sinna hjúkrunarfræðingar fólki á öllum aldri, bráðaerindum, bókuðum tímum og símaráðgjöf ásamt því að svara skilaboðum í gegnum Heilsuveru. Í bókaðri móttöku er tekið á móti erindum s.s. ferðamannaheilsuvernd, sárameðferð, lyfjagjöfum ásamt heilsueflandi móttöku.   

Skólahjúkrun 

Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir viðkomandi öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Reynsla af starfi í heilsugæslu æskilegt
  • Reynsla af fjölskylduhjúkrun kostur
  • Áhugi og vilji til að vinna með börnum og fjölskyldum
  • Þekking á forvarnar- og heilsueflingarstarfi kostur
  • Þekking á réttindum barna
  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu
  • Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur
  • Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Góð almenn tölvukunnátta
Utworzono ofertę pracy16. September 2026
Termin nadsyłania podań28. September 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Sunnukriki 3, 270 Mosfellsbær
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.PielęgniarkaPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.AmbicjaPathCreated with Sketch.SumiennośćPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.ElastycznośćPathCreated with Sketch.Praca zespołowa
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe