Coripharma ehf.
Coripharma ehf.
Coripharma ehf.

Tæknimaður í umsjón og viðhaldi vélbúnaðar við tæknideild

Coripharma leitar að lausnamiðuðum, metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi í starf tæknimanns í umsjón og viðhaldi vélbúnaðar við tæknideild.

Tæknideild Coripharma er stoðdeild innan framleiðslu- og verkfræðisviðs og sér um viðhald og eftirlit með mjög fjölbreyttum tækjabúnaði í verksmiðju og á rannsóknarstofum fyrirtækisins, sem staðsett er í Hafnarfirði.

Starfsemi Coripharma þarf að uppfylla fjölbreyttar og strangar kröfur lyfjaiðnaðarins, þar á meðal GMP-reglur. Tæknideildin gegnir lykilhlutverki í að tryggja að öll tæknikerfi og tækjabúnaður uppfylli þessar kröfur á hverjum tíma.

Í starfi tæknimanns felst fjölbreytt tæknileg umsjón og viðhaldsvinna við tækjabúnað og tæknikerfi fyrirtæksins skv. skipulagi deildarinnar. Mikilvægur þáttur af starfinu er virk þátttaka í öryggis- og gæðamálum. Öll viðhaldsvinna er skráð í miðlægt viðhaldskerfi. Unnið er á dagvöktum en að auki þarf teymið á skipta á milli sér bakvöktum.


Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fyrirbyggjandi viðhald, viðgerðir, eftirlit og breytingar á tækjabúnaði framleiðslu- og rannsóknarsviðs
  • Þátttaka í kvörðunum á tækjabúnaði
  • Þátttaka í uppsetningu á nýjum tækjabúnaði
  • Eftirlit og vöktun á tæknikerfum
  • Samskipti við birgja og þjónustuaðila


Menntunar- og hæfniskröfur

  • Iðn- eða tæknimenntun sem nýtist í starfi, s.s. vélfræði, iðnfræði, vélvirkjun eða annað sambærilegt
  • Viðtæk reynsla úr iðnaði af bilanagreiningum og viðgerðum á vélbúnaði, stýringum og rafbúnaði
  • Nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð skilyrði
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulund
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Góð almenn tölvukunnátta


Fríðindi

  • Mötuneyti

Coripharma er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki með um 230 starfsmenn sem byggir á traustum grunni lyfjaþróunar og framleiðslu á Íslandi. Félagið sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og útflutningi samheitalyfja ásamt því að sinna verktökuframleiðslu fyrir önnur lyfjafyrirtæki.

Frá því að félagið hóf starfsemi árið 2018 hefur það hafið framleiðslu á 26 lyfjum og er með 21 ný lyf í þróun. Nánari upplýsingar um Coripharma má finna á www.coripharma.is

Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.

Umsóknarfrestur er til og með 1. júní næstkomandi.

Nánari upplýsingar veitir Kristinn Ragnarsson, deildarstjóri Tæknideildar í síma 420 6711 eða í tölvupósti [email protected] og Sigurður Ágúst Einarsson, sviðsstjóri framleiðslu- og verkfræðisviðs í tölvupósti: [email protected]

Utworzono ofertę pracy22. May 2026
Termin nadsyłania podań1. June 2026
Znajomość języków
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Reykjavíkurvegur 76, 220 Hafnarfjörður
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Rozwiązywanie problemówPathCreated with Sketch.Naprawa elektryki samochodowejPathCreated with Sketch.Naprawy silników samochodowychPathCreated with Sketch.PrzemysłowiecPathCreated with Sketch.ElektrykaPathCreated with Sketch.Mechanika
Zawody
Tagi zawodowe