First Water
First Water
First Water

Næturvaktarfólk í viðhaldsteymi

Við leitum að iðnmenntuðum og/eða handlögnum einstaklingi í framtíðarstarf í viðhaldsdeild félagsins. Unnið verður á næturvöktum. Starfstöðin er á Laxabraut í Þorlákshöfn.

Um er að ræða frábært tækifæri til að taka þátt í spennandi verkefni þar sem verkefnin eru bæði fjölbreytt og áhugaverð. Mikil tækifæri til að þróast í starfi og bæta við sig þekkingu.

First Water leggur áherslu á faglega viðhaldsstjórnun og kemur viðkomandi til með að fá tækifæri til að taka þátt í þróun og uppbyggingu á viðhaldsstjórnunarkerfi.

Í fiskeldisstöð félagsins er margvíslegur véla- og tæknibúnaður sem krefst viðhalds og þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almennt viðhald á búnaði stöðvarinnar, þ.m.t. dælubúnaði, hreinsibúnaði, fóðurbúnaði og eldiskerfum
  • Vinna við þróun og uppbyggingu á viðhaldsstjórnunarkerfi
  • Rekstur á krapakerfi og öðrum kerfum tengdum slátrun á laxi

Menntunar og hæfniskröfur

  • Iðnmenntun sem nýtist í starfi, t.d. vélvirkjun/bifvélavirkjun eða reynsla af viðgerðum
  • Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
  • Frumkvæði í starfi og umbótahugsun

Nánari upplýsingar veitir Árni Viggó Sigurjónsson, viðhaldsstjóri, [email protected]

Umsóknafrestur er til og með 7. júní. Byrjað verður að vinna úr umsóknum um leið og þær berast

First Water er framsækið íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem vinnur að uppbyggingu laxeldis á landi, og nýtir til þess náttúruauðlindir Íslands á sjálfbæran hátt. Lykillinn að velgengni félagsins mun liggja í mannauði þess og leggur félagið því ríka áherslu á öflugan hóp reynslumikils og drífandi starfsfólks.

Utworzono ofertę pracy22. May 2026
Termin nadsyłania podań7. June 2026
Znajomość języków
Brak wymagań językowych
Lokalizacja
Laxabraut
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe
Więcej ofert pracy (1)