Akraneskaupstaður
Akraneskaupstaður
Akraneskaupstaður

Sundlaugarvörður, tímabundið starf

Akraneskaupsstaður auglýsir eftir starfsmanni til starfa í íþróttamannvirkjum, m.a. við klefagæslu í karlaklefa og sundlaugarvörslu. Starfið gegnir mikilvægu hlutverki í þjónustu við börn og fullorðna á Akranesi.

Áhersla er lögð á góða samskiptahæfni, sveigjanleika og þjónustulund.

Viðkomandi þarf að vera 19 ára eða eldri.

Um vaktavinnu er að ræða og unnið er bæði morgun, kvöld og helgar. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst. Um tímabundið starf er að ræða til eins árs til að byrja með.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sundlaugargæsla
  • Aðstoð við skólabörn, fyrir og eftir kennslu
  • Almenn afgreiðsla
  • Almenn þrif í mannvirkjunum
  • Eftirlit með gæðum laugarvatns og búnaði laugar
  • Umsjón með hreinlæti í og við laug og íþróttahús
  • Taka á móti, leysa úr og/eða koma áfram þeim ábendingum sem berast frá viðskiptavinum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stundvísi, jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
  • Gerð er krafa um ríka þjónustulund ásamt því að eiga auðvelt með að umgangast börn sem og fullorðna
  • Reynsla af þjónustustörfum kostur
  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Góð íslensku kunnátta
  • Umsækjandi þarf að fara á námskeið í skyndihjálp
  • Umsækjandi þarf að standast hæfnispróf sundstaða
  • Umsækjandi þarf að hafa hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
  • Íþróttastyrkur
  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • 36 tíma vinnuvika, sem í vaktavinnu getur farið niður í 34 stundir
Utworzono ofertę pracy17. September 2026
Termin nadsyłania podań30. September 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Jaðarsbakkar 1, 300 Akranes
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.RecepcjaPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.SumiennośćPathCreated with Sketch.Pierwsza pomocPathCreated with Sketch.PunktualnośćPathCreated with Sketch.PływaniePathCreated with Sketch.Nastawienie do klienta
Odpowiada
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe