Akraneskaupstaður
Akraneskaupstaður
Akraneskaupstaður

Bókari hjá Akraneskaupstað

Við leitum að bókara sem hefur metnað til að ná árangri, vinnur sjálfstætt og býr yfir góðri samskiptahæfni. Ef þú hefur gaman af því að vinna með fólki og vilt taka þátt í að skapa jákvæð áhrif í öflugu teymi, þá er þetta starf fyrir þig.

Um fullt starf er að ræða en starfið heyrir undir fjármála- og innkaupadeild. Deildin hefur í höndum fjárstýringu, reikningshald, yfirumsjón með fjárhagsáætlun, lánastýringu, umsjón með gjaldskrám, innkaupamál og fleira.

Fjárhagskerfi Akraneskaupstaðar er Microsoft Dynamics 365 Business Central.

Helstu verkefni og ábyrgð
  •  Dagleg umsjón með vinnslu á bókhaldi Akraneskaupstaðar og stofnana þess
  •  Dagleg umsjón með vinnslu bókhalds fyrir Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili
  •  Dagleg umsjón með innlestri rafrænna reikninga
  •  Afstemmingar á bankareikningum og efnahagsreikningum
  •  Tekur þátt í uppgjörsvinnslu og ársreikningagerð
  •  Upplýsingagjöf til lánardrottna, stjórnenda, forstöðumanna stofnana og annarra starfsmanna
  •  Virk þátttaka og samstarf innan fjármála- og þjónustusviðs og annarra sviða
Menntunar- og hæfniskröfur
  •  Stúdentspróf eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  •  Reynsla af sambærilegu starfi
  •  Nám til viðurkennds bókara er kostur
  •  Góð tölvukunnátta er skilyrði
  •  Góð þekking og reynsla af Business Central (BC) er kostur
  •  Samskiptahæfni, jákvætt viðhorf og lausnamiðuð hugsun
  •  Rík þjónustulund, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  •  Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
  •  Góð íslenskukunnátta er nauðsynleg
Fríðindi í starfi
  • Góður og sveigjanlegur vinnustaður
  • 36 stunda vinnuvika
  • Heilsueflingarstyrkur
Utworzono ofertę pracy10. September 2026
Termin nadsyłania podań23. September 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Dalbraut 4, 300 Akranes
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.RekoncyliacjaPathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.AmbicjaPathCreated with Sketch.Microsoft Dynamics 365 Business CentralPathCreated with Sketch.Sumienność
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe