
Sumarstörf í garðyrkju
Garðvinna eins og nýframkvæmdir, þökulagnir, gróðursetning, trjáklippingar, trjáfellingar, stubbafræsun, beðahreinsun, umhirða gróðurbeða, umhirða grænna svæða, garðsláttur, grasumhirða, hellulagnir, hreinsun á hellulögn og fleira. Draumagarðar er reyklaust fyrirtæki.
Garðvinna eins og nýframkvæmdir, þökulagnir, gróðursetning, trjáklippingar, trjáfellingar, stubbafræsun, beðahreinsun, umhirða gróðurbeða, umhirða grænna svæða, garðsláttur, grasumhirða, hellulagnir, hreinsun á hellulögn og fleira.
Við erum að leita af áhugasömum einstaklingum og einnig vinnupörum (vinum) sem vilja vinna saman í sumar með okkur. Við erum að leita af skemmtilegu fólki sem er jafnframt hraust á líkama og sál og tilbúið að deila með okkur sólargeislunum í allt sumar. Því eins og flestir vita þá verður sett nýtt met í sólardögum á Íslandi sumarið 2025. Frítt tan og góð laun í boði fyrir jákvætt og lífsglatt fólk sem elskar að vinna í kringum skemmtilegasta fólk í heimi.
Sól og frítt tan í allt sumar













