Grunnskóli Reyðarfjarðar
Grunnskóli Reyðarfjarðar
Grunnskóli Reyðarfjarðar

Stuðningsfulltrúi við Grunnskóla Reyðarfjarðar

Um er að ræða u.þ.b. 80% starf fyrir skólaárið 2026-2027. Í skólanum eru um 200 börn í 1. – 10. bekk. Leitað er að einstaklingi sem er reiðubúinn til að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks þar sem áherslan er lögð á samstarf og samvinnu.

Skólastarf Grunnskóla Reyðarfjarðar miðast að því að efla hvern einstakling í námi og starfi með fjölbreyttum kennsluaðferðum með áherslu á list- og verkgreinar. Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu, www.grunnrey.is

Reyðarfjörður er í hjarta Fjarðabyggðar þar sem góðar samgöngur liggja til allra átta. Stutt er í ósnortna náttúru og fjölbreytta afþreyingamöguleika.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Námslegur stuðningur við nemendur á unglingastigi með áherslu á íslensku, stærðfræði, tungumál og raungreinar.
  • Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins.
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við bekkjarkennara og foreldra.
  • Hefur hagsmuni nemenda að leiðarljósi, sýnir hverjum og einum virðingu, áhuga og umhyggju.
  • Stuðningsfulltrúi starfar undir stjórn deildarstjóra sérkennslu í samvinnu við bekkjarkennara.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð menntun sem nýtist í starfi er æskileg.
  • Faglegur styrkleiki í íslensku, stærðfræði og tungumálum.
  • Góð tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu er skilyrði.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. Evrópska tungumálarammanum.
Utworzono ofertę pracy19. May 2026
Termin nadsyłania podań2. June 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Heiðarvegur 14A, 730 Reyðarfjörður
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe