Snælandsskóli
Snælandsskóli
Snælandsskóli

Stuðningsfulltrúi í Snælandsskóla

Snælandsskóli er heildstæður um 480 nemenda grunnskóli staðsettur í Fossvogsdal. Skólinn byggir á langri hefð fyrir framsæknu og árangursríku skólastarfi þar sem áhersla hefur verið lögð á þátttöku í margs konar þróunar- og nýbreytniverkefnum. Skólinn hefur lagt áherslu á umhverfismál og er löng hefð fyrir Grænfána. Skólinn styðst við Olweusaráætlunina gegn einelti og er Réttindaskóli Unicef.

Einkunnarorð skólans eru: Viska – virðing – víðsýni – vinsemd.

Starfssvið og helstu verkefni

Við leitum eftir hressum og öflugum stuðningsfulltrúa þar sem helstu verkefni eru að:

  • aðstoða nemendur við daglegar athafnir og virka þátttöku í bekkjarstarfi. Styður við nemendur í félagslegum samskiptum innan og utan kennslustofu.
  • aðstoða nemendur við að ná settum markmiðum samkvæmt námskrá og námsáætlunum undir leiðsögn kennara.
  • sjá um gæslu með ákveðnum bekkjum eða/og hópum í útivist.
  • fylgja einum eða fleiri nemendum eftir á ferðum þeirra um skólann, í frímínútum og vettvangsferðum.
  • aðstoða nemendur í matsal eftir þörfum.
  • inna að undirbúningi skólastarfs fyrir skólasetningu og á starfsdögum kennara undir verkstjórn kennara eða skólastjórnenda.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum er æskileg.
  • Þolinmæði og framúrskarandi hæfni í samskiptum.
  • Viðkomandi þarf að vera skipulagður, sýna sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
  • Stundvísi og áreiðanleiki er skilyrði.
  • Umsækjandi þarf að vera tilbúinn að vinna eftir stefnu skólans.
  • Góð íslenskukunnátta.

Ráðningartími og starfshlutfall

Um 75% stöðu er að ræða til áramóta með möguleika á framlengingu.

VIðkomandi þarf að geta hafið störf 17. ágúst eða því sem næst.

Aðrar upplýsingar

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila inn sakavottorði.

Tekið verður mið af jafnréttisstefnu Kópavogsbæjar við ráðningu í starfið.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Brynjar M. Ólafsson skólastjóri í síma 860-3526 eða netfangið [email protected].

Tekið er á móti starfsumsóknum í gegnum alfred.is.

Fríðindi í starfi

Starfsmenn Kópavogs fá frítt í sund í sundlaugar Kópavogs.

Utworzono ofertę pracy7. August 2026
Termin nadsyłania podań20. August 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Víðigrund 1, 200 Kópavogur
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe