Ævintýraborg við Nauthólsveg
Ævintýraborg við Nauthólsveg
Ævintýraborg við Nauthólsveg

Sérkennsla í leikskólanum Ævintýraborg við Nauthólsveg

Við leitum að metnaðarfullum og umhyggjusömum einstaklingi til að ganga til liðs við sérkennsluteymið okkar. Starfið felst í að veita einstaklingsmiðaðan stuðning við börn sem þurfa sérstaka aðstoð í leik og námi.

Ævintýraborg við Nauthólsveg er 6 deilda leikskóli sem staðsettur er í fallegu umhverfi. Öskjuhlíð og Nauthólsvík eru hluti af okkar daglega uppeldis- og námsumhverfi og leggjum við áherslu á útinám, læsi, félagsfærni og nám í gegnum leik þar sem forvitni og vellíðan barna er í fyrirrúmi.

Einkunnarorð leikskólans eru virðing, vinátta og vellíðan. Hjá okkur starfar samhentur og hlýr hópur sem leggur ríka áherslu á vellíðan, gleði og fagmennsku í starfi með börnum. Við trúum því að börn læri best í gegnum leik, forvitni og tengsl og að starfsfólk sem fær að njóta sín skapi bestu aðstæðurnar fyrir börnin.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið er unnið í samstarfið við sérkennslustjóra og deildarstjóra. Helstu verkefni og ábyrgð eru að:

  • Sjá um umönnun, kennslu og þjálfun barns í takt við þarfir þess.
  • Setja upp einstaklingsáætlanir og endurmeta þær.
  • Vera í samstarfi við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa eftir atvikum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • þroskaþjálfamenntun, leikskólakennaramenntun, sálfræðimenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi. 
  • Reynsla af sérkennslu er æskileg.
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Stundvísi og áreiðanleiki.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Góð tölvukunnátta.
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
  • Hreint sakavottorð er skilyrði.
Fríðindi í starfi
  • Forgangur í leikskóla fyrir börn starfsfólks og afsláttur af leikskólagjöldum.
  • Frítt fæði á vinnutíma.
  • Heilsuræktarstyrkur.
  • Samgöngustyrkur.
  • Menningar- og bókasafnskort.
  • Sundkort í allar sundlaugar í Reykjavík.
  • 36 stunda vinnuvika.
Utworzono ofertę pracy8. August 2026
Termin nadsyłania podań22. August 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Nauthólsvegur 83, 102 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.AmbicjaPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.Organizacja
Zawody
Tagi zawodowe