Mosfellsbær
Mosfellsbær
Mosfellsbær

Stjórnandi Skólahljómsveitar Mosfellsbæjar

Fræðslu- og frístundasvið auglýsir stöðu stjórnanda Skólahljómsveitar Mosfellsbæjar lausa til umsóknar.

Í Mosfellsbæ er ein skólahljómsveit sem þjónar börnum og ungmennum úr öllum skólum bæjarfélagsins. Hljómsveitin starfar annars vegar á grunni aðalnámskrár tónlistarskóla og hins vegar á grunni menntastefnu Mosfellsbæjar sem samþykkt var árið 2022.

Meginmarkmið skólahljómsveitarinnar er að jafna tækifæri nemenda til tónlistarnáms og stuðla að hæfni þeirra til að flytja, skapa og njóta tónlistar. Tæplega eitt hundrað nemendur stunda nám í skólahljómsveitinni sem kemur fram á tónleikum og við fjölmörg önnur tækifæri sem tengjast starfsstöðum fræðslu- og frístundasviðs og á menningartengdum viðburðum í bæjarfélaginu.

Í Skólahljómsveit Mosfellsbæjar eru nemendur á grunnskólaaldri og aðsetur hljómsveitarinnar er í Varmárskóla. Starfið fer fram í þremur blásarasveitum og skiptast nemendur í þær eftir aldri og getu. Kennt er á málm- og tréblásturshljóðfæri sem leikið er á í hefðbundnum blásarasveitum auk slagverks. Megináhersla er lögð á að undirbúa og styðja nemendur vegna þátttöku í hljómsveitarstarfi.

Leitað er að einstaklingi sem hefur kunnáttu og metnað til að leiða starf hljómsveitarinnar, vilja til að taka virkan þátt í öflugu samstarfi við leik- og grunnskóla bæjarins og aðrar stofnanir, hefur sýnt árangur í störfum sínum, býr yfir leiðtogahæfileikum og hefur víðtæka þekkingu og reynslu á sviði tónlistarmenntunar barna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á listrænni stjórnun skólahljómsveitar
  • Mótun á stefnu skólahljómsveitar og framkvæmd hennar
  • Stjórn og ábyrgð á rekstri, skipulagi og daglegri starfsemi hljómsveitarinnar
  • Ábyrgð á mannauðsmálum s.s. ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun
  • Ábyrgð á samstarfi við aðila skólasamfélagsins
  • Kennsla í samræmi við fjölda nemenda hverju sinni
  • Virk þátttaka í sameiginlegum verkefnum tengdum fræðslu- og frístundastarfi
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Lokapróf á blásturshljóðfæri eða önnur hljóðfæri sem kennt er á í skólahljómsveitinni
  • Framhaldsmenntun æskileg
  • Reynsla af stjórnun hljómsveita
  • Reynsla af kennslu og vinnu með börnum og unglingum
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og metnaður til að þróa nýjar og árangursríkar leiðir í starfi
  • Reynsla og þekking af rekstri og fjármálum æskileg
  • Góð tækni- og tölvukunnátta
  • Gott orðspor, drifkraftur og jákvæðni
  • Framúrskarandi lipurð og hæfni í samskiptum
Utworzono ofertę pracy8. May 2026
Termin nadsyłania podań24. May 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Varmárskóli
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Bez kryminalnej przeszłości
Zawody
Tagi zawodowe