Tónlistarskóli Árnesinga
Tónlistarskóli Árnesinga
Tónlistarskóli Árnesinga

Aðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla Árnesinga

Auglýst er eftir aðstoðarskólastjóra í fullt starf við Tónlistarskóla Árnesinga

frá 1. ágúst 2026. Stjórnunarhlutfall er um 85%, kennsluskylda 15%.

Að Tónlistarskóla Árnesinga standa öll átta sveitarfélög Árnessýslu og er hann einn stærsti og umsvifamesti tónlistarskóli landsins. Starfsemi skólans fer fram á tólf stöðum í sýslunni. Fjöldi nemenda er um 540 og um 40 kennarar starfa að jafnaði við skólann.

Upplýsingar veita núverandi skólastjórnendur, Helga Sighvatsdóttir skólastjóri ([email protected]) og Jóhann I. Stefánsson aðstoðarskólastjóri ([email protected]), en skólastjóri frá ágúst 2026 er Stefán Haukur Gylfason.

Umsóknarfrestur er til og með 22. maí 2026

Umsóknir sendist á netfang skólans [email protected].

Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og einnar blaðsíðu kynningarbréf þar sem á kerfisbundinn hátt er gerð grein fyrir því hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur starfsins. Vinsamlegast tilgreinið a.m.k. tvo meðmælendur.

Helstu verkefni og ábyrgð

Aðstoðarskólastjóri:

- vinnur undir stjórn skólastjóra og er tilbúinn að ganga í verk skólastjóra þegar á þarf að halda.

- ber ábyrgð á vissum þáttum starfsins, en hefur fyrst og fremst umsjón með fjölþættu og krefjandi innra starfi skólans.

- sinnir m.a. launaútreikningi ásamt skólastjóra.

- er tengiliður við ýmsar opinberar stofnanir.

- hefur umsjón með nemendaskrá og kennaraskrá.

- kemur að gerð ársskýrslu.

- sinnir öðrum tilfallandi verkefnum sem skólastjóri felur honum hverju sinni.

Menntunar- og hæfniskröfur

Tónlistarmenntun á háskólastigi (kennari 3).

Stjórnunarreynsla æskileg.

Innsæi í starfsemi tónlistarskóla og þróun tónlistarnáms æskilegt.

Mjög góð tölvukunnátta.

Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvætt viðmót og þjónustulund.

Fagmennska, metnaður og frumkvæði.

Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.

Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.

Utworzono ofertę pracy8. May 2026
Termin nadsyłania podań22. May 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Eyravegur 9, 800 Selfoss
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe