
Sensa ehf.
Sensa er alþjóðlegt þjónustufyrirtæki með starfsstöðvar í tólf löndum sem sérhæfir sig í fjölbreyttum lausnum í upplýsingatækni. Hjá Sensa starfar reynslumikill hópur sérfræðinga með hátt þekkingarstig.
Við bjóðum upp á sveigjanlegt vinnuumhverfi þar sem reynt er að koma til móts við þarfir hvers og eins eftir bestu getu.
Markmið Sensa er að vera ávallt í fararbroddi þar sem sterk liðsheild, hátt þekkingarstig og verðmæt viðskiptasambönd spila stórt hlutverk. Áhersla er lögð á að starfsfólk styrki sig í þekkingu og menntun með ýmsu móti og geti vaxið á eigin forsendum.
Eigandi Sensa er norska fyrirtækið Crayon sem starfar í 46 löndum. Crayon býður ýmsar lausnir í upplýsingatækni og er Sensa virkur þátttakandi í þróun þeirra lausna og í þjónustu við fyrirtæki á alþjóðavettvangi.

Starfsmaður óskast í innkaupa- og lagerstarf
Sensa leitar að öflugum og skipulögðum einstaklingi til að ganga til liðs við söluteymi Sensa í fjölbreytt innkaupa- og lagerstarf.
Viðkomandi mun sinna verkefnum tengdum birgðahaldi, móttöku, afhendingu vara, samskiptum við birgja og þróun ferla. Mikil áhersla er lögð á frumkvæði, nákvæmni og góða samskiptahæfni.
Starfið verður mótað í samráði við starfsmanninn þar sem styrkleikar og áhugasvið verður nýtt til fulls. Því hvetjum við fólk með fjölbreytta reynslu eða sérþekkingu – hvort sem það er úr lagerstörfum, innkaupum, aðfangakeðju, upplýsingakerfum eða öðru – til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg störf á lager, móttaka og frágangur búnaðar
- Umsjón með birgðahaldi og skráning í kerfi
- Innkaup á vörum og samskipti við birgja
- Skipulagning og eftirfylgni pantana
- Þátttaka í umbótaverkefnum og ferlavinnu
- Stuðningur við önnur störf innan teymisins
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af lagerstörfum og/eða innkaupum er skilyrði
- Góð skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum
- Færni í tölvukerfum og skráningarkerfum fyrir lager og innkaup
- Reynsla af D365 er kostur en ekki skilyrði
- Lipurð í samskiptum og mikil þjónustulund
- Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi
- Bílpróf er skilyrði
- Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
Fríðindi í starfi
- Samgöngustyrkur fyrir þá sem kjósa annan ferðamáta en einkabílinn
- Heilsueflingarstyrkur
- Hjólageymsla, líkamsræktar- og sturtuaðstaða
- Fyrsta flokks mötuneyti
Utworzono ofertę pracy6. June 2025
Termin nadsyłania podań15. June 2025
Znajomość języków

Wymagane

Wymagane
Lokalizacja
Lyngháls 4, 110 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Oznaczenia
Podobne oferty pracy (12)

Aðstoðarmanneskja í innkaupadeild og vörulager.
TDK Foil Iceland ehf

Útkeyrsla/lagerafgreiðsla
Íspan Glerborg ehf.

Starfsmaður óskast á lager - tiltekt
Esja Gæðafæði

Lagerstarf
Ísfell

Bílstjóri óskast í afleysingar frá 1. júlí - 12. sept
Samhjálp

Áfyllingar og umsjón - sjálfsalar
Sjálfsalar.is

Rammagerðin og 66°Norður á Keflavíkurflugvelli - Lagerstarf
Rammagerðin og 66°norður - Keflavíkurflugvelli

Öflugur innkaupafullrúi hjá Rubix og Verkfærasölunni óskast
Rubix og Verkfærasalan

Grænmetis- og rekstrarvörulager í Reykjanesbæ
Skólamatur

Dreifingarmiðstöð - vörumóttaka
Vínbúðin

Starf á lager og í snyrtivöruturni
1912 ehf.

Partýfulltrúi - Fullt starf
Rent-A-Party