

Partýfulltrúi - Fullt starf
Við erum að leita af kraftmiklum, skipulögðum og þjónustumiðuðum einstakling til að gerast hluti af mjög skemmtilegu teymi og taka þátt í virkilega spennandi verkefnum hjá einu flottasta partý-fyrirtæki landsins.
Um er að ræða fullt starf og er vinnutíminn 9 - 16 á virkum dögum og 9 - 16 á laugardögum, aðra hverja helgi. Vinnutíminn getur þó einnig verið breytilegur, þá sérstaklega á föstudögum og laugardögum þegar mikið er um að vera.
Rent-A-Party sérhæfir sig í leigu á öllum þeim búnaði sem getur gert viðburði flottari, skemmtilegri og eftirminnilegri, ásamt smásölu á tilheyrandi vörum. Við leggjum mjög mikla áherslu á að veita fyrsta flokks þjónustu.
Starfið felur meðal annars í sér:
· Vera í samskiptum við viðskiptavini og afgreiða pantanir.
· Undirbúa búnað fyrir útleigu.
· Afhenda búnað og sinna uppsetningum og niðurtektum.
· Önnur tilfallandi verkefni sem gætu komið upp.
Hæfniskröfur
· Vera 18 ára eða eldri
· Vera með bílpróf
· Vilji og geta til að vinna um helgar
Við leitum af einstakling sem getur hafið störf sem fyrst.
Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi skal senda hér í gegnum ráðningarkerfi Alfreðs. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.













