Velferðarsvið Kópavogsbæjar
Velferðarsvið Kópavogsbæjar
Velferðarsvið Kópavogsbæjar

Starfsfólk óskast í stoð- og stuðningsþjónustu fyrir fullorðið fatlað fólk

Velferðarsvið Kópavogsbæjar leitar að jákvæðum, hressum og drífandi starfsmanni í 60%-90% starfshlutfall í vaktavinnu og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, og helgarvaktir.

Um er að ræða starf með fötluðu fólki og stuðning við athafnir daglegs lífs.

Íbúar eru allir í sjálfstæðri búsetu og felst starfið í að aðstoða þá með athafnir daglegs lífs inni á þeirra heimilum.

Við leggjum áherslu á jákvæð samskipti, húmor og framúrskarandi þjónustu. Í boði er skemmtilegt og fjölbreytt starf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Veita stuðning við athafnir daglegs lífs, s.s. að klæðast, matast, aðstoð með þjálfun og almenna virkni, innkaup og önnur tilfallandi verkefni.
  • Að styðja einstaklinga til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð.
  • Að sinna umönnun og vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan, aðstoða fólk varðandi heilsufarslega þætti eftir þörfum hverju sinni
  • Aðstoða með öll almenn heimilisstörf
  • Vera félagslegur stuðningur
  • Samvinna við yfirmenn, aðstandendur og annað starfsfólk.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, skipulagshæfni, stundvísi og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Bílpróf er skilyrði.
  • Reynsla og kunnátta í aðstoð við fatlað fólk er æskileg.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Hreint sakavottorð.
  • Umsækjendur þurfa að vera 20 ára eða eldri.

Fríðindi í starfi

  • Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.

Umsóknarfrestur er til og með 4. október 2026.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Allir einstaklingar sem ráðnir eru til starfa á Velferðarsviði Kópavogsbæjar þurfa að veita heimild til upplýsingaöflunar úr sakaskrá.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Steinunn Helga Óskarsdóttir, forstöðumaður, í tölvupósti: [email protected].

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Kópavogsbæjar og jafnréttislögum við ráðningar.

Tekið er við umsóknum í gegnum ráðningavef Kópavogs.

Utworzono ofertę pracy25. September 2026
Termin nadsyłania podań4. October 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Vallakór 4, 203 Kópavogur
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe