NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Aðstoðarkonur óskast í NPA-starf á kvöld- og helgarvaktir tímabundið starf til 31 október  

Only Icelandic-speaking applicants will be considered.

45 ára eða eldri bara ráðnar

Kona á einhverfurófi óskar eftir aðstoðarkonum í hlutastarf á heimili sínu. Starfið felur í sér félagsskap, stuðning og aðstoð við dagleg störf.

Um er að ræða persónulega aðstoð þar sem mikilvægt er að starfsfólk sé rólegt, áreiðanlegt og með góða hæfni í samskiptum. Starfið getur verið bæði andlega og líkamlega krefjandi og hentar því best einstaklingum sem hafa mikla þolinmæði, skýra nærveru og geta haldið ró sinni í flóknum samskiptum.

Reynsla af starfi með einhverfu fólki er mikill kostur.

Sérstaklega er óskað eftir eldri aðstoðarkonum með lífsreynslu sem hafa þekkingu og ánægju af prjónaskap, hekli eða elska íslensk dægurlög.

Vaktir í boði:

Annað hvert mánudagskvöld kl 17-23

Ein helgi í mánuði:

    • Föstudagur kl. 17:00–23:00
    • Laugardagur kl. 17:00–23:00
    • Sunnudagur kl. 20:30–23:30

Einn laugardagur í mánuði kl. 11:00–16:00

Einn sunnudagur í mánuði kl. 11:00–16:00

Um er að ræða tímabundið starf til 31. október.

Ekki er æskilegt að ein manneskja taki þetta allt.

Hæfniskröfur og mikilvægar upplýsingar

Það er hundur er á heimilinu og þarf starfsfólk því að vera tilbúið til að aðstoða við umhirðu hundsins.

Æskilegt er að umsækjandi:

  • Hafi reynslu af starfi með einhverfu fólki eða öðrum störfum þar sem reynir á samskiptafærni,
  • Sé róleg, þolinmóð og lausnamiðuð,
  • Geti tekið leiðbeiningum og unnið samkvæmt skýrum ramma,
  • Sé stundvís, traust og ábyrg,
  • Sé vön hundum eða treysti sér vel til að vera á heimili þar sem hundur er til staðar.

Helstu áhugamál min eru: prjón ,hekl, syngja, kór, prjónahópur, bingó og hundurinn minn.

Umsækjandi þarf að hafa bílpróf og aðgang að bíl.

Vegna ofnæmis má ekki koma með hnetur, möndlu,myntu og mentol inn á heimilið eða á vaktir. Um er að ræða hnetu,möndlu,myntu og mentol ofnæmi

Fólk sem reykir er ekki æskilegt. Heimilt er að veipa an mentols nota nikótíntyggjó an mentols eða nota nikótín í vör an mentols svo framarlega sem það hefur ekki áhrif á störf eða umhverfi á vakt.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi NPA miðstöðvarinnar.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • góð íslenskukunnátta
Utworzono ofertę pracy24. September 2026
Termin nadsyłania podańŻaden
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
104 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.Prawo jazdyPathCreated with Sketch.Cierpliwość
Odpowiada
Zawody
Tagi zawodowe