
Eimskip
Hlutverk Eimskips er að veita áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum á sjálfbæran hátt með árangur viðskiptavina að leiðarljósi. Við höfum verið traustur samstarfsaðili í alþjóðlegum flutningum frá árinu 1914 og rekum 56 skrifstofur í 20 löndum með um 1.700 starfsmönnum. Við tryggjum viðskiptavinum okkar áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum meðal annars með áætlunarsiglingum og rekstri gáma- og frystiskipa í Norður-Atlantshafi, hafnarþjónustu, landflutningum, vöruhúsa- og frystigeymsluþjónustu og alþjóðlegu skrifstofuneti í flutningsmiðlun.
Hjá Eimskip er lögð sérstök áhersla á að skapa jákvæða menningu með sterkri liðsheild, tækifærum til þróunar, hvatningu til að sýna frumkvæði, opnum skoðanaskiptum og góðri miðlun upplýsinga.

Vélvirki, vélstjóri eða bifvélavirki óskast á vélaverkstæði
Eimskip óskar eftir að ráða vélvirkja, vélstjóra, bifvélavirkja eða fólk með viðeigandi reynslu til framtíðarstarfa á vélaverkstæði félagsins í Sundahöfn.
Við bjóðum upp á fjölbreytt og krefjandi verkefni í fyrsta flokks vinnuaðstöðu þar sem fagmennska og öryggi eru í forgrunni. Verkstæðið er hluti af samheldnu teymi sem vinnur að viðhaldi og uppbyggingu tækja og búnaðar sem styður við alþjóðlega flutningsstarfsemi Eimskips.
Um fullt starf er að ræða. Unnið er mánudaga til fimmtudaga frá kl. 07:30 - 16:00 og til kl. 13:30 á föstudögum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almennar viðgerðir og bilanagreining vökva-, raflagna- og annars vélbúnaðr.
- Fyrirbyggjandi viðhald tækja og búnaðar
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Nám í vélvirkjun, vélstjórn, bifvélavirkjun eða 3ja ára reynsla er skilyrði
- Reynsla af viðgerðum á stórum tækjum er kostur
- Reynsla af vökvabúnaði og raflögnum er kostur
- Góð kunnátta í íslensku og/eða ensku er skilyrði
- Góð þjónustulund og jákvæðni
Utworzono ofertę pracy7. September 2026
Termin nadsyłania podań21. September 2026
Znajomość języków
islandzkiWymagane
Lokalizacja
Sundabakki 2, 104 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
Pozytywne nastawienieNastawienie do klienta
Zawody
Tagi zawodowe
Więcej ofert pracy (5)
Podobne oferty pracy (12)

Bifvélavirki - Peugeot
Peugeot á Íslandi | Brimborg

Smiður
Tækniskólinn

Tæknimaður
STOÐ

Hópstjóri á Verkstæði
Toyota

Viðhald lyftara og búnaðar í vöruhúsi
Bera hf.

Starfsmaður á hjólbarðaverkstæði á Akureyri
Dekkjahöllin ehf

Standsetningar nýrra tækja
BRP - Ellingsen

Langar þig að vinna á einu flottasta bifreiðaverkstæði landsins ?
Hekla

Sviðsstjóri á Akureyri
HD ehf. Iðn- og tækniþjónusta

Rafvirkjar og vélvirkjar
Norðurál

Starfsmaður á tækjaverkstæði - Keflavíkurflugvöllur
Icelandair

1. Vélstjóri óskast á Kristrúnu RE-177
Fiskkaup hf.