Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Starfsfólk á þjónustukjarna fyrir fatlað fólk - Drekavellir

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga starfsmenn í lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks, staðsett á Völlunum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.

Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Viðkomandi þarf að geta unnið morgun, kvöld, og helgarvaktir. Við erum að óska eftir starfsfólki í fullt starf og hlutastarf.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Hafa gaman í vinnunni, vera öðrum fyrirmynd og sýna frumkvæði
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum
  • Almenn heimilisstörf
  • Samskipti við ýmsa þjónustuaðila
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og samviskusemi
  • Ágætis tölvukunnátta
  • Starfið krefst góðs líkamlegs atgervis
  • Ökuréttindi skilyrði

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.

Frekari upplýsingar um starfið Berglind Brynjarsdóttir, forstöðukona í síma: 544-2360, netfang: [email protected]

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 5. september 2025.

Samkvæmt jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar eru karlar jafnt sem konur hvattir til að sækja um starfið.

Utworzono ofertę pracy21. August 2025
Termin nadsyłania podań5. September 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe