Mosfellsbær
Mosfellsbær
Mosfellsbær

Starfsfólk á Heimili fyrir börn

Við á Heimili fyrir börn í Mosfellsbæ leitum eftir öflugu og framsæknu starfsfólki til liðs við okkur. Við veitum börnum með flókinn og fjölþættan vanda einstaklingsmiðaða þjónustu með það að markmiði að veita börnunum góða líðan og auka félagslega þátttöku. Starfsfólk vinnur eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar og hugmyndafræði um sjálfstætt líf sem og þjónustu - og starfsáætlunum.

Mikið er lagt upp úr úr góðri liðsheild og samvinnu á staðnum.

Leitað er að starfsfólki í 30-80% starfshlutfall frá miðjum júní. Um er að ræða tímabundin störf með möguleika á framlengingu.

Við störfum skv. lögum um fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 og skv. stefnu Mosfellsbæjar í málaflokknum.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitafélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Umsóknafrestur er til og með 25.júní. Umsóknir skulu innihalda starfsferilskrá sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita þjónustunotendum einstaklingsmiðaðan stuðning við athafnir daglegs lífs 
  • Hvetja og styðja þjónustunotendur til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja þjónustunotendur til þátttöku í samfélaginu
  • Veita þjónustunotendum félagsskap og taka þátt í skipulagi hvers dags
  • Stuðla að markvissu og skilvirku samstarfi við þjónustunotendur,aðstandendur, fagaðila og aðra þá sem koma að þjónustu við þjónustunotendur
  • Almenn heimilisstörf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð almenn menntun
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks og reynsla af störfum með fötluðu fólki er mikill kostur
  • Góð þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Framtaksemi og samviskusemi
  • Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi
  • Hreint sakavottorð
  • Aldursskilyrði er 20 ár
  • Góð íslenskukunnátta
  • Bílpróf
Utworzono ofertę pracy5. June 2025
Termin nadsyłania podań25. June 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Opcjonalnie
Doskonale
Lokalizacja
Þverholt 2, 270 Mosfellsbær
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Szybko się uczęPathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Bez kryminalnej przeszłościPathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.PunktualnośćPathCreated with Sketch.praca pod presją
Odpowiada
Zawody
Oznaczenia