Icelandia
Icelandia
Icelandia

Stafrænn markaðssérfræðingur

Ertu árangursdrifin(nn/ið), hugmyndarík(ur/t) og með brennandi áhuga á stafrænni markaðssetningu? Icelandia leitar að öflugum, reynslumiklum einstaklingi til að ganga til liðs við metnaðarfullt markaðsteymi okkar.

Ferðaskrifstofa Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun. Fyrirtækið sinnir ferðafólki með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með og bestun stafrænna auglýsingaherferða, t.d. á Google Ads, Meta Ads og Microsoft Ads, í samstarfi við auglýsingastofur og samstarfsaðila.
  • Uppsetning og framkvæmd árangursríkra tölvupóstaherferða fyrir bæði B2C og B2B markað.
  • Samskipti og eftirfylgni við auglýsingastofur og samstarfsaðila — þar sem viðkomandi tekur leiðandi stöðu og gerir kröfur til gæðastarfs.
  • Verkefnastjórn á sviði markaðssetningar í samstarfi við teymið.
  • Þétt samstarf við vef- og samfélagsmiðlateymi til að tryggja samræmda og árangursríka miðlunarstefnu.
  • Eftirfylgni með áætlunum, regluleg greining gagna og skýrslugerð til að styðja við stefnumótun.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Haldbær reynsla úr sambærilegu starfi í stafrænni markaðssetningu og/eða nám sem nýtist vel í starfi.
  • Þekking og reynsla af Google Ads og Meta Business Suite o.fl.
  • Reynsla af email marketing tólum (t.d. Mailchimp, Klaviyo eða sambærilegum).
  • Þekking á vefgreiningartólum (Google Analytics, Tag Manager o.fl.).
  • Sterk greiningarhæfni og færni í að vinna með mælingar og KPI.
  • Leiðtogahæfni í samskiptum við birgja og stofur – geta til að gera skýrar kröfur og tryggja árangur.
  • Góð færni á íslensku og ensku.
  • Skipulögð, lausnamiðuð og árangursdrifin vinnubrögð og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymi.
Fríðindi í starfi
  • Fjölbreytt og krefjandi verkefni í öflugu markaðsteymi.
  • Sveigjanleiki í vinnuumhverfi og framúrskarandi starfsandi.
  • Líkamsræktarstyrkur, sálfræðistyrkur og möguleikar á símenntun.
Utworzono ofertę pracy13. June 2025
Termin nadsyłania podań30. June 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Klettagarðar 12, 104 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Marketing e-mailowyPathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.GooglePathCreated with Sketch.Google AnalyticsPathCreated with Sketch.MailchimpPathCreated with Sketch.Marketing internetowyPathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.Praca zespołowaPathCreated with Sketch.Zarządzanie projektem
Zawody
Oznaczenia