NTC ehf
NTC ehf
NTC ehf

Umsjónarmaður vefverslunar NTC

NTC óskar eftir að ráða skipulagða, metnaðarfulla og jákvæða manneskju til að sinna starfi umsjónarmanns vefverslunar.

Erum að leita að manneskju sem er skipulögð, vinnur vel undir álagi, vinnusöm, á gott með mannleg samskipti, sýnir frumkvæði, sjálfstæð í vinnubrögðum og með mikinn drifkraft og metnað fyrir starfinu sínu.

Umsjónarmaður vefverslunar er partur af markaðsteymi NTC og mun starfa á skrifstofu fyrirtækisins.

Ntc.is er vefverslun með vörum frá öllum verslunum NTC. Vefverslunin er sívaxandi og leitum við að manneskju með metnað og drifkraft til að viðhalda þeirri vegferð. NTC er lifandi og fjölbreytt fyrirtæki sem hefur í yfir 45 ár verið leiðandi í innflutningi, framleiðslu og sölu á tískufatnaði á Íslandi.

NTC starfrækir 14 verslanir á höfuðborgarsvæðinu, vefverslun, saumastofu og heildsölu sem selur fatnað til margra af betri tískuvöruverslunum á landsbyggðinni. NTC rekur verslanirnar Gallerí Sautján, GS skó, Kultur, Kultur menn, SmashUrban, EVU, GK Reykjavík, Karakter, Outlet-10 og Companys ásamt vefverslunina ntc.is. Hjá NTC starfa um 140 manns þar sem lagt er mikið uppúr góðum starfsanda og sterkri liðsheild.

NTC hefur margoft hlotið viðurkenningar frá VR sem fyrirmyndafyrirtæki og eins viðurkenningar frá CreditInfo sem framúrskarandi fyrirtæki.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með vefversluninni ntc.is. 
    • Setja inn vörur.
    • Halda síðunni uppfærðri. Skipta út myndum, textum, flokkum, stofna afsláttarkóða osfrv.
  • Eftirfylgni með pöntunum innanhúss
  • Umsjón með tölfræði ntc.is
  • Samskipti við hýsingaraðila varðandi uppfærslur og villur á ntc.is
  • Samskipti við dreifingaraðila varðandi sendingar
  • Önnur tilfallandi verkefni tengd ntc.is
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af umsjón með vefverslun er nauðsynleg
  • Háskólamenntun eða menntun sem nýtist í starfi er góður kostur
  • Reynsla af Business Central er góður kostur
  • Skipulögð og öguð vinnubrögð nauðsynleg
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum sem og að vinna vel í teymi
  • Færni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðhorf og vinna vel undir álagi
  • Góð almenn tölvukunnáta
  • Metnaður að stækka ntc.is enn frekar
  • Gott vald á íslensku og ensku bæði í töluðu og rituðu máli
  • Gott auga með tísku og nýjustu trendum er góður kostur
Utworzono ofertę pracy12. June 2025
Termin nadsyłania podańŻaden
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Kringlan 4-12, 103 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.AmbicjaPathCreated with Sketch.Microsoft Dynamics 365 Business CentralPathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.praca pod presją
Środowisko pracy
Zawody
Oznaczenia