Byko
Byko
Byko

Söluráðgjafi sérlausna – innihurðir og innréttingar

Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingi til að sinna starfi söluráðgjafa sérlausna.

Starfið felur í sér ráðgjöf, tilboðsgerð og sölu sérlausna (innihurðir og innréttingar) ásamt eftirfylgni með pöntun og afhendingu til einstaklinga og/eða verktaka í stærri framkvæmdum.

Starfið tilheyrir Verslun Breidd og er viðkomandi með aðstöðu á skrifstofu verslunar.

Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.

Við leitum af einstaklingi með:

  • Þekkingu á innréttingum og hurðum, skilyrði.
  • Þekkingu á byggingamarkaðnum, kostur
  • Menntun sem nýtist í starfi, kostur.
  • Ríka þjónustulund
  • Góða tölvukunnáttu, þekking á AX og/eða teikniforritum.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Áhuga á verslun og þjónustu.
  • Samviskusemi, skipulögð og öguð vinnubrögð
  • Íslensku- og enskukunnáttu, skilyrði.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tilboðsgerð, sala og ráðgjöf á sérlausnum og sérpöntunum til viðskiptavina.
  • Samskipti við erlenda og innlenda birgja.
  • Önnur tilfallandi störf

Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.

BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.

Utworzono ofertę pracy3. July 2025
Termin nadsyłania podań13. July 2025
Znajomość języków
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Skemmuvegur 2A, 200 Kópavogur
Rodzaj pracy
Zawody
Oznaczenia