

Smiðir í vinnuflokki á Suðurlandi
Vegagerðin óskar eftir öflugum og úrræðagóðum einstaklingum í starf smiðs í vinnuflokki sem sinnir viðhaldi brúa á suður- og austurlandi þar sem Vegagerðin er veghaldari. Starfið getur hentað nemum í húsasmíði eða öðrum vönum byggingarverkamönnum.
Starfsmenn vinnuflokka vinna almennt á virkum dögum, nokkuð langa vinnudaga þar sem önnur hvor vika er styttri en hin. Unnið er úti allan ársins hring. Þegar svo ber undir gæti þurft að vinna í 10 daga úthaldi.
Vinnuflokkar eru hluti af viðbragðskerfi Vegagerðarinnar vegna náttúruvár og geta verið kallaðir til starfa með stuttum fyrirvara þegar brýr verða fyrir skemmdum vegna flóða.
Ef þú hefur reynslu af verklegum framkvæmdum, býrð yfir góðri samvinnuhæfni og hefur áhuga á að taka þátt í mikilvægu viðhaldsstarfi á vegakerfi landsins - þá viljum við heyra frá þér.
Helstu verkefni eru smíðar og samsetning móta og mannvirkja sem tengjast smíðum og viðhaldi brúa.
- Viðhald brúa
- Ýmis störf tengd framleiðslu á hlutum tengdum vega- og brúargerð
- Viðhald á búnaði vinnuflokksins
- Sveinspróf í húsasmíði æskilegt
- Vinnuvélaréttindi æskileg
- Reynsla af smíði, steypu- og múrvinnu er kostur
- Góð öryggisvitund
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp
- Gott vald á íslensku
- Almenn tölvukunnátta
- Almenn ökuréttindi












