
Skólaritari
Breiðholtsskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk og þar sækja nám um 430 nemendur og við hann starfa 80 starfsmenn. Skólinn er í hjarta Breiðholtshverfis í Reykjavík og stendur við Arnarbakka 1 - 3. Við skólann er góð útisundlaug, stórt íþróttahús og fallegur hátíðarsalur.
Við skólann er lögð áhersla á árangur fyrir alla nemendur og einkunnarorðin ábyrgð, traust og tillitssemi eru leiðarljós í daglegu starfi skólans. Við sem hér störfum erum stolt af skólanum okkar sem státar af fjölmenningarlegu samfélagi nemenda, foreldra og starfsmanna.
Í Breiðholtsskóla er lögð áhersla á skapandi og skemmtilegt skólastarf, læsi, félagsfærni og sjálfseflingu.
Lögð er áhersla á samvinnu starfsmanna þar sem allir taka virkan þátt í þróun skólastarfsins í anda Aðalnámskrár og Menntastefnu Reykjavíkurborgar.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis
Starfshlutfall 70-100%
Umsóknarfrestur 4.ágúst 2025
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásta Bjarney Elíasdóttir skólastjóri í síma 6648252 og í tölvupósti [email protected]
· Umsjónarmaður móttökuskrifstofu skólans, afgreiðsla, símsvörun, ljósritun, skjalavistun, skipulag forfalla og forfallaskráning, upplýsingagjöf og póstafgreiðsla.
· Umsjón með innkaupum rekstrarvara, birgðahald og færir bókhald.
· Ýmis ritarastörf í samstarfi við skólastjórnendur og skrifstofustjóra.
· Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
· Að vinna í teymi með öðru starfsfólki.
· Stúdentspróf
· Reynsla af ritarastörfum og bókhaldi æskileg.
· Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.
· Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
· Faglegur metnaður.
· Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
· Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

