Búsetukjarninn Langahlíð
Búsetukjarninn Langahlíð
Búsetukjarninn Langahlíð

Skemmtilegt sumarstarf í búsetukjarna

Viltu vera með í að skapa fötluðu fólki tækifæri til að lifa til fulls?

Við í Lönguhlíð í Mosfellsbæ leitum eftir öflugu og framsæknu starfsfólki til liðs við okkur í sumar. Við veitum íbúum einstaklingsmiðaða þjónustu og leggjum okkur fram um að auka víðsýni þeirra með félagslegri virkni. Starfsfólk vinnur eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar og hugmyndafræði um sjálfstætt líf. Einnig leggjum við mikið upp úr góðri liðsheild og samvinnu á staðnum. Við störfum skv. lögum um fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 og skv stefnu Mosfellsbæjar í málaflokknum.

Gengið er út frá því að starfsmenn vinni á fjölbreyttum vöktum (dag-, kvöld-, helgar- og næturvöktum).

Um sumarstarf er að ræða.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitafélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Starfað er samkvæmt hugmyndafræði um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn
  • Veita íbúum stuðning við allar athafnir daglegs lífs
  • Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu
  • Almenn heimilisstörf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • 20 ára aldurstakmark
  • Góð almenn menntun
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Reynsla af störfum með fötluðu fólki er mikill kostur
  • Tala og skilja íslensku
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Framtakssemi, sjálfstæði og samviskusemi
  • Hreint sakavottorð
  • Bílpróf
Utworzono ofertę pracy1. April 2026
Termin nadsyłania podań17. April 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Skálahlíð 1-15 1R, 270 Mosfellsbær
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Podstawowe kategorie prawa jazdyPathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.SumiennośćPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.Opieka (dzieci/seniorzy/niepełnosprawni)
Zawody
Tagi zawodowe