Forréttindi
Forréttindi

80-100% NPA sumarstarf - 1 helgi í mánuði og 3-4 virkir dagar

Ertu peppuð, sveigjanleg og opinhuga manneskja í atvinnuleit?

Þá er ég að leita að þér!

Ég er að leita að NPA aðstoðarkonu.

Ég er hreyfihömluð kona á fertugsaldri, búsett í Hafnarfirði með syni mínum og maka. Ég er doktorsnemi og starfa fyrir baráttusamtök fatlaðra kvenna og kvàr.

Ég þarf aðstoð við flest allt sem fylgir því að vera manneskja og taka virkan þátt í samfélaginu. Ég þarf m.a. aðstoð við persónulegt hreinlæti, heimilisstörf, eldamennsku og við að komast á milli staða.

Um er að ræða 80-100% starf yfir sumarið eða 5-6 sólarhringsvaktir, þar með talið 1 helgi í mánuði.

Möguleiki á framhaldi í haust. Starfið er kjörið meðfram námi eða öðrum verkefnum þar sem um lengri og færri vaktir á mánuði er um að ræða, en hefðbundið er. Þ.e. sólarhringsvaktir sem fela í sér sofandi næturvaktir.

Umsækjendur þurfa að hafa bílpróf, tala íslensku eða ensku, vera sveigjanlegir, tilbúnir í góða samvinnu og opnir fyrir nýrri reynslu. Einnig að vera reyk- og rafrettulaus og með hreint sakavottorð.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið aðlögun í lok maí mánaðar.

Utworzono ofertę pracy2. April 2026
Termin nadsyłania podańŻaden
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Opcjonalnie
Kompetencje na wysokim poziomie
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Drekavellir 26, 221 Hafnarfjörður
Rodzaj pracy
Odpowiada
Zawody
Tagi zawodowe