Síminn
Síminn
Síminn

Síminn leitar að skapandi og framsýnum fræðslusérfræðingi

Við leitum að drífandi og framsýnum fræðslusérfræðingi til að ganga til liðs við mannauðsteymi Símans og leiða og þróa fræðslumál Símans og dótturfélaga. Starfið felur í sér að hanna, útfæra og innleiða fræðslu og þjálfunaráætlanir sem byggir upp starfstengda hæfni, efla stjórnendur og starfsfólk ásamt því að styðja við stefnu og menningu fyrirtækisins.
Hjá okkur færðu tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á þróun mannauðs- og fræðslumála í umhverfi sem leggur ríka áherslu á nýsköpun og árangur. Ef þú hefur brennandi áhuga á að styðja starfsfólk og stjórnendur til að vaxa og þróast í starfi þá viljum við heyra frá þér!

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna náið með stjórnendum og mannauðsteymi að mótun og framkvæmd fræðslustefnu
  • Móta og skipuleggja markvissa stjórnendaþjálfun í takt við stefnu og framtíðarsýn fyrirtækisins
  • Kortleggja hæfniþarfir og hanna þjálfun sem byggir upp lykilhæfni og styður við starfsþróun starfsfólks og árangur fyrirtækisins
  • Að styðja við breytingar með fræðslu og þjálfun sem hvetur til þátttöku og vaxtar
  • Nýta skapandi aðferðir, stafrænar lausnir og nútímaleg fræðslutól til að hámarka árangur þjálfunar
  • Önnur mannauðstengd verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er æskileg
  • Haldgóð reynsla af fræðslumálum, þjálfun starfsfólks og stjórnenda er skilyrði
  • Þekking á Eloomi Infinite fræðslukerfinu er æskileg
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og hæfni til að miðla þekkingu á áhrifaríkan og aðgengilegan hátt
  • Reynsla í hönnun og framsetningu fræðsluefnis með faglegum hætti
  • Drifkraftur og sjálfstæð vinnubrögð
  • Framsækin og lausnamiðuð hugsun
  • Þekking og áhugi á notkun stafrænna lausna og gagnadrifinnar nálgunar í fræðslu
Fríðindi í starfi
  • Árlegur líkamsræktarstyrkur 
  • Aðgengi að velferðarþjónustu Heilsuverndar 
  • Rafmagnsbílastæði, hjólageymslur og búningsaðstaða 
  • Gleraugnastyrkur 
  • Afslættir af vörum og þjónustu Símans 
  • Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu 
  • Námsstyrkir
Utworzono ofertę pracy2. May 2025
Termin nadsyłania podań14. May 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Ármúli 25, 108 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.KreatywnośćPathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.Organizacja
Zawody
Oznaczenia