Matvælastofnun
Matvælastofnun

Sérgreinadýralæknir fisksjúkdóma

Matvælastofnun leitar af metnaðarfullum sérgreinadýralækni til að slást í fiskeldis teymið okkar, tækifæri til að móta og skapa framtíð í fiskeldisdeild.

Markmið fiskeldisdeildar er að stuðla að ábyrgu lagareldi og standa vörð um heilbrigði og velferð lagardýra. Traust, gagnsæi og fagleg umgjörð er lykilatriði til að greinin fái að vaxa og dafna í sátt við umhverfið og samfélagið.

Lagareldi er fjölbreytt atvinnugrein með mörgum undirgreinum, s.s sjókvíaeldi, landeldi, úthafseldi og þörungaeldi. Lagareldi á sér langa sögu á Íslandi en hefur vaxið hratt síðasta áratuginn, fyrst og fremst í sjókvíaeldi á laxi. Miðað við núverandi áform getur lagareldi orðið ný stoð í íslenska hagkerfinu og mikilvægt að greinin þróist og vaxi með sjálfbærum hætti.

Til að ná háleitum markmiðum þarf frábæra liðsheild, þess vegna viljum við fá í okkar hóp metnaðarfullan og skapandi einstakling sem hefur áhuga á að kynnast og þróa framtíð fiskeldis. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki, þjálfum það og leiðbeinum um allt sem snýr að fiskeldi og því er reynsla af fiskeldi/lagareldi ekki nauðsynleg! Starfið er á starfsstöð Matvælastofnunar á höfuðborgarsvæðinu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sinnir eftirliti í fiskeldisstöðvum
  • Sýnatökur í fiskeldi
  • Úrvinnsla umsókna um inn- og útflutning dýra og dýraafurða
  • Útgáfa heilbrigðisvottorða
  • Önnur verkefni tengd inn- og útflutning
  • Úrvinnsla gagna og miðlun niðurstaðna
  • Aðkoma að uppbyggingu fiskeldisdeildar
  • Önnur tilfallandi verkefni fiskeldisdeildar
  • Hefur enskufærni málfar og ritun C1 skv. samevrópska tungumálarammanum.
  • Hefur íslenskufærni málfar og ritun B2 skv. samevrópska tungumálarammanum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Dýralæknismenntun og réttindi til dýralækninga 
  • Sérstök þekking á sjúkdómum eldisfiska kostur 
  • Áhugi á að læra gagnaúrvinnslu
  • Nákvæmni, frumkvæði, lausnarmiðuð nálgun og sjálfstæði í starfi
  • Geta til að vinna undir álagi, þrautseigja og aðlögunarhæfni
  • Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að vinna í teymi
  • Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á ensku er skilyrði, tök á norðurlandamáli kostur
Utworzono ofertę pracy9. April 2026
Termin nadsyłania podań29. April 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Matvælastofnun höfuðborgarsvæði
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.ProfesjonalnośćPathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Bez kryminalnej przeszłościPathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.Administracja publicznaPathCreated with Sketch.SumiennośćPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.SprawozdaniaPathCreated with Sketch.Nastawienie do klienta
Zawody
Tagi zawodowe