
Eftirlitsdýralæknir á sviði velferðar og aðbúnaðar dýra í Norðvesturumdæmi
Viltu taka þátt í að tryggja velferð dýra og standa vörð um matvælaöryggi á Íslandi?
Matvælastofnun óskar eftir að ráða eftirlitsdýralækni á sviði velferðar og aðbúnaðar dýra í Norðvesturumdæmi með aðsetur á Sauðárkróki. Um 100% starf er að ræða en mögulegt er að semja um lægra starfshlutfall.
Matvælastofnun er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem gætir hagsmuna neytenda og málleysingja. Megináhersla er lögð á starfsánægju og samskipti ásamt því að vera öflugt og lifandi þekkingarsamfélag.
Við stöndum vörð um heilsu manna, dýra og plantna og aukum þannig velferð og verðmætasköpun í þágu þjóðarinnar. Gildi Matvælastofnunar eru FAGMENNSKA, GAGNSÆI OG TRAUST.
Eftirlitsdýralæknir er framlínustarf innan stofnunarinnar sem stuðlar að velferð dýra um land allt. Starfið er krefjandi og útheimtir mikla faglega þekkingu, framúrskarandi samskiptahæfni og getu til að vinna eftir nákvæmum verklagsreglum í oft á tíðum erfiðum aðstæðum. Eftirlitsdýralæknar eru andlit stofnunarinnar á vettvangi og gegna lykilhlutverki í að framfylgja lögum og reglugerðum sem stuðla eiga að dýraheilbrigði, dýravelferð og öryggi matvæla.
-
Dýralæknamenntun og íslenskt starfsleyfi er skilyrði
-
Reynsla af umgengni við búfé og önnur dýr æskileg
-
Góðir skipulags- og samskiptahæfileikar
-
Þekking á opinberri stjórnsýslu æskileg
-
Reynsla af opinberu eftirliti æskileg
-
Frumkvæði, fagleg vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
-
Góð almennri tölvukunnáttu og geta til að tileinka sér færni í notkun starfstengdra kerfa sem stofnunin notar
-
Hefur enskufærni málfar og ritun C1 skv. samevrópska tungumálarammanum.
-
Hefur íslenskufærni málfar og ritun B2 skv. samevrópska tungumálarammanum.
islandzki
Angielski