Fjársýslan
Fjársýslan

Sérfræðingur / teymisstjóri – launakeyrslur

Viltu hafa raunveruleg áhrif á hvernig launavinnsla ríkisins þróast til framtíðar?

Fjársýslan leitar að drífandi og lausnamiðuðum sérfræðingi sem vill leiða framþróun í launakeyrslum ríkisins – einstaklingi sem sameinar faglega dýpt, sterka greiningarhæfni og hæfni til að leiða teymi að skýrum markmiðum.

Framundan eru spennandi verkefni þar sem lögð er áhersla á að einfalda og bæta ferla, auka sjálfvirkni og tryggja áreiðanleika, gagnaöryggi og virðisaukandi þjónustu. Í starfinu færð þú tækifæri til að hafa mótandi áhrif á þróun launakerfa og vinnubragða, á sama tíma og þú tryggir skilvirk og ábyrg skil verkefna.

Þú munt leiða og styðja teymi sérfræðinga, stýra verkefnum og vinna náið með ríkisaðilum að umbótum og betri þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða og þróa launakeyrslur og tengd verkefni
  • Drífa áfram umbætur á ferlum, verklagi og stafrænum lausnum
  • Fagleg stýring teymis og verkefnastjórnun
  • Greining og úrvinnsla gagna úr launakerfum
  • Kortleggja tækifæri til aukinnar skilvirkni og umbóta
  • Samskipti og samstarf við ríkisaðila
  • Fræðsla, ráðgjöf og miðlun þekkingar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hefur háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Ert töluglögg/ur með sterka greiningarhæfni og lausnamiðað hugarfar
  • Hefur reynslu af launakerfum og/eða bókhaldi
  • Þekkir kjarasamninga og túlkun þeirra
  • Hefur leiðtogahæfni, þjónustulund og góða samskiptahæfni
  • Vinnur skipulega, sýnir frumkvæði og leggur áherslu á nákvæmni
  • Hefur gott vald á íslensku og ensku
Utworzono ofertę pracy11. May 2026
Termin nadsyłania podań26. May 2026
Znajomość języków
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Katrínartún 6
Rodzaj pracy
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe