Fiskistofa
Fiskistofa

Sérfræðingur í tækniþróun eftirlits

Fiskistofa leitar að öflugum og drífandi einstaklingi til að leiða þróunar- og tilraunaverkefni á sviði rafræns eftirlits.

Meginverkefnið felst í þróun, uppsetningu og prófun myndavéla- og greiningarbúnaðar um borð í vinnsluskipi, í samstarfi við útgerð og aðra samstarfsaðila.

Verkefnið er liður í frekari þróun rafræns eftirlits og nýrrar tækni hjá Fiskistofu.

Starfið er tímabundið til tveggja ára og tengist verkefni sem hlotið hefur styrk úr verkefnasjóði sjávarútvegsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða og halda utan um tilraunaverkefni Fiskistofu á sviði rafræns eftirlits og myndgreiningar um borð í vinnsluskipi.
  • Samhæfa og halda utan um samstarf þeirra aðila sem að verkefninu koma.
  • Fylgja eftir uppsetningu, þróun og prófun tæknilausna sem nýta m.a. gervigreind, myndgreiningu og aðra stafræna tækni.
  • Koma að þróun verklags og reglna og innleiðingu nýrra tæknilausna í eftirliti.
  • Halda utan um gagnasöfnun, framgang verkefnis, skýrslugerð og kynningu niðurstaðna.
  • Koma að öðrum þróunarverkefnum og samstarfs- og styrkjamöguleikum á sviði rafræns eftirlits
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og/eða haldgóð reynsla og þekking sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af verkefnastjórnun eða innleiðingu nýrra lausna er kostur.
  • Góð tæknileg hæfni og geta til að tileinka sér og vinna með nýja tækni.
  • Þekking eða reynsla af gervigreind, myndgreiningu, gagnagreiningu eða öðrum stafrænum lausnum er kostur.
  • Þekking á sjávarútvegi er kostur.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og góð skipulags-, samskipta- og samstarfshæfni.
  • Góð greiningarhæfni og geta til að halda yfirsýn yfir flókin verkefni.
  • Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
Utworzono ofertę pracy22. September 2026
Termin nadsyłania podań6. October 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.Zarządzanie projektem
Zawody
Tagi zawodowe