
Arnarlax ehf
Arnarlax er leiðandi laxeldisfyrirtæki á Íslandi með aðalstarfsemi á Vestfjörðum og með höfuðstöðvar á Bíldudal. Fyrirtækið er að fullu lóðrétt samþætt með alla þætti virðiskeðjunnar á sinni hendi, þar með talið seiðaframleiðslu, eldi, vinnslu og sölu.
Arnarlax teymið samanstendur nú af um 170 hæfu fólki á öllum stigum virðiskeðjunnar. Hjá okkur starfar einvala hópur fólks af öllum kynjum og ýmsum þjóðernum sem vinna saman að framleiðslu fyrsta flokks lax til viðskiptavina um allan heim.
Við erum með starfsemi í 5 mismunandi sveitarfélögum með starfsstöðvar á Bíldudal, Patreksfirði, Tálknafirði og Kópavogi, og með seiðaframleiðslu á Tálknafirði, Þorlákshöfn og Hallkelshólum.
Arnarlax er jafnlaunavottað fyrirtæki.
Arnarlax hvetur alla áhugasama einstaklinga til að sækja um starf, óháð kyni og þjóðernisuppruna.

Gæði, fiskeldi og umbætur, er þetta eitthvað fyrir þig?
*English below
Við leitum að öflugum og skipulögðum einstaklingi til að styrkja gæðateymi Arnarlax. Starf Gæðafulltrúa Arnarlax snýr að gæðamálum í sjókvíaeldi og seiðaeldi og felur jafnframt í sér verkefni þvert á starfsemi fyrirtækisins.
Gæðafulltrúi heyrir undir gæðastjóra og vinnur náið með stjórnendum og starfsfólki. Við leitum að einstaklingi sem vill vera í góðum tengslum við starfsemina, vinna með fólki og taka virkan þátt í að þróa og bæta verklag.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Eftirfylgni með verklagi, skjölun, skráningum og gæðakröfum
- Skráning og eftirfylgni frávika, úrbóta og fyrirbyggjandi aðgerða
- Þátttaka í áhættumati og eftirfylgni smitvarna
- Þátttaka í innleiðingu og eftirfylgni með lögbundnum kröfum, stöðlum og vottunum, m.a. ASC
- Undirbúningur og þátttaka í innri og ytri úttektum
- Reglulegar úttektir á starfsstöðvum fyrirtækisins
- Fræðsla og stuðningur við starfsfólk varðandi gæðamál og verklag
- Þátttaka í þróun gæðakerfis og stöðugum umbótum
Starfið er ekki eingöngu skrifstofustarf. Reglulegar heimsóknir á starfsstöðvar sjódeildar og seiðaeldis eru mikilvægur hluti starfsins og ferðalög innan starfssvæðis fyrirtækisins því hluti af starfinu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði fiskeldis, sjávarútvegs, líffræði, gæðastjórnunar eða sambærilegu, er kostur
- Reynsla úr fiskeldi og/eða gæðastarfi er kostur
- Þekking á gæðakerfum, innri úttektum eða vottunarstöðlum er kostur
- Góð samskiptahæfni, sjálfstæð vinnubrögð og lausnamiðað hugarfar
- Frumkvæði, skipulagshæfni og hæfni til að fylgja verkefnum eftir
- Góð enskukunnátta ásamt góðri almennri tölvukunnáttu er skilyrði
Fríðindi í starfi
- Fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf í vaxandi atvinnugrein
- Tækifæri til að hafa áhrif á þróun gæðastarfs Arnarlax
- Fjölbreytt starfsumhverfi og innsýn í allt eldisferlið
- Tækifæri til faglegs þroska og aukinnar þekkingar
- Öflugt samstarf þvert á deildir og starfsstöðvar
- Góð vinnuaðstaða og sveigjanleiki í starfi
- Heilsu- og líkamsræktarstyrkur
Utworzono ofertę pracy22. September 2026
Termin nadsyłania podań11. October 2026
Znajomość języków
AngielskiWymagane
islandzkiOpcjonalnie
Lokalizacja
Strandgata 1, 465 Bíldudalur
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe
Podobne oferty pracy (12)

Bókari,launafulltrúi
Vörukaup ehf

Skrifstofustjóri
Lyfjafræðingafélag Íslands

Öflug manneskja í skrifstofuvinnu
Netkerfi og tölvur ehf.

Verkefnastjóri stjórnunarkerfa og gæðamála
Landsnet hf.

Þjónusturáðgjafi
Teya Iceland

Verkefnastjóri NASF á Íslandi
NASF á Íslandi

Frábært skrifstofustarf í boði -Skrifstofa stéttarfélaganna-
Framsýn,stéttarfélag

Operations Manager
BusTravel Iceland ehf.

Sölumaður - Prívat lúxusferðir
Deluxe Iceland

Viltu taka þátt í að stuðla að heilbrigðri vinnustaðamenningu og vinna á skemmtilegum vinnustað
Vinnueftirlitið

VR á Egilsstöðum
VR

Sölu- og ferðaráðgjafi
Iceland ProTravel