Lyfjafræðingafélag Íslands
Lyfjafræðingafélag Íslands
Lyfjafræðingafélag Íslands

Skrifstofustjóri

Lyfjafræðingafélag Íslands (LFÍ) leitar að öflugum skrifstofustjóra í 9 mánaða afleysingu vegna fæðingarorlofs. LFÍ er fag- og stéttarfélag lyfjafræðinga á Íslandi. Félagið vinnur að því að efla faglega stöðu lyfjafræðinga, gæta hagsmuna félagsmanna og standa vörð um réttindi félagsmanna með bættum kjörum og aukinni starfsánægju. Félagið rekur skrifstofu í Lyfjafræðisafninu á Seltjarnanesi og annast fjölbreytt verkefni fyrir félagsmenn, meðal annars fræðslu, félagsstarf og rekstur orlofshúsa og sjóða.

Helstu verkefni og ábyrgð

Skrifstofustjóri sér um rekstur skrifstofu LFÍ og heildarskipulag félagsstarfsins. Meðal verkefna eru:

  • Daglegur rekstur skrifstofu, greiðsla reikninga, útgáfa reikninga og kröfur í DK
  • Utanumhald og umsýsla umsókna sjúkra-, starfsmenntunar- og fræðslusjóðs
  • Móttaka erinda símleiðis og svörun tölvupósta 
  • Umsjón orlofshúsa og orlofsvefs
  • Umsjón með heimasíðu, útgáfa fréttabréfs, Facebook-hópi og Instagram LFÍ
  • Aðstoð við fræðslu- og félagsstarf líkt og undirbúningur fyrir dag Lyfjafræðinnar, auglýsingar og skráningu þátttakenda
  • Fundarboð, dagskrárgerð, fundarsókn og eftirfylgd funda, m.a. stjórnarfunda, fræðslufunda og aðalfunda
  • Undirbúningur ársskýrslu, ársreikninga, fjárhagsáætlun og kosning félagsmanna
  • Umsjón félagatals og póstlista
  • Ýmis verkefni tengd Lyfjafræðisafninu, samskipti við leigjendur og þjónustuaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði rekstrar eða skrifstofuhalds (DK)
  • Skipulagshæfni, sjálfstæði í vinnubrögðum og góð samskiptahæfni
  • Framúrskarandi þjónustulund og sveigjanleiki í starfi
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt, bera ábyrgð og halda utan um fjölbreytt verkefni
  • Góð tölvukunnátta og áhugi á einföldun ferla með nýtingu tækni og aðstoð gervigreindar
  • Gott vald á íslensku, bæði í ræðu og riti.
  • Lausnamiðað viðhorf og metnaður í starfi
  • Þekking á störfum lyfjafræðinga er kostur
Fríðindi í starfi
  • Tækifæri til að hafa áhrif á þróun innri ferla og skipulag
  • Sveigjanlegt vinnuumhverfi og fjölbreytt verkefni
  • Aðgangur að félagslegum viðburðum og fræðslu
  • Samkeppnishæf laun
Utworzono ofertę pracy30. September 2026
Termin nadsyłania podań15. October 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Opcjonalnie
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Safnatröð 3, 170 Seltjarnarnes
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.CanvaPathCreated with Sketch.DKPathCreated with Sketch.MotywacjaPathCreated with Sketch.Marketing e-mailowyPathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.BudżetowaniePathCreated with Sketch.Szybko się uczęPathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Bez kryminalnej przeszłościPathCreated with Sketch.KreatywnośćPathCreated with Sketch.InstagramPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.AmbicjaPathCreated with Sketch.FakturowaniePathCreated with Sketch.NiepalącyPathCreated with Sketch.Komunikacja telefonicznaPathCreated with Sketch.Komunikacja przez e-mailPathCreated with Sketch.SumiennośćPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.SchludnośćPathCreated with Sketch.SkrupulatnośćPathCreated with Sketch.Nastawienie do klienta
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe