
Johan Rönning
Johan Rönning var stofnað árið 1933 af norðmanninum Johan Rönning sem kom upphaflega hingað til lands árið 1921 til að vinna við háspennutengingar í Elliðárvirkjun.
Í dag er Johan Rönning hluti af Fagkaupum þar sem rúmlega þrjúhundruð starfsmenn starfa í fjölbreyttum störfum ólíkra starfsstöðva og fyrirtækja.
Fagkaup veitir byggingar-, iðnaðar- og veitumarkaði virðisaukandi þjónustu.
Innan Fagkaupa eru einnig verslunar- og þjónustufyrirtækin Sindri, Vatn og veitur, S. Guðjónsson, Varma og Vélarverk, K.H. vinnuföt, Áltak, Fossberg, Ísleifur, DS lausnir, Hagblikk og K. Þorsteinsson og co.
Fagkaup starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Auk þess hefur Fagkaup hlotið vottun skv. ISO 9001 gæðastaðlinum.
Eitt af lykilmarkmiðunum er að fara fram úr væntingum viðskiptavina. Til að ná þeim markmiðum er hæft starfsfólk mikilvægur partur í daglegum störfum Fagkaupa.
Í Mannauðsstefnu Fagkaupa er lögð áhersla á tækifæri til starfsþróunnar og vaxtar í starfi með öflugu fræðslustarfi og fjölbreyttum störfum innan fyrirtækisins.
Unnið er að jákvæðu, hvetjandi og öruggu starfsumhverfi þar sem heilsutengdar forvarnir skapa góðan vinnustað með vellíðan starfsfólks að leiðarsljósi.

Sérfræðingur í rafbúnaði í útibúi Johan Rönning, Akureyri
Johan Rönning óskar eftir að ráða sérfræðing í útibú fyrirtækisins á Akureyri.
Sérfræðingur veitir ráðgjöf til fagfólks og viðskiptavina.
Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf sem býður upp á möguleika til starfsþróunnar og vaxtar í starfi.
Starfið kallar á frumkvæði og framsýni í nýju og skapandi vinnuumhverfi þar sem einstaklingurinn er hluti af öflugu og sóknarmiðuðu teymi.
Við leggjum mikið upp úr góðu vinnuumhverfi þar sem starfsfólk hefur það að markmiði að veita framúrskarandi þjónustu.
Johan Rönning er í dag hluti af Fagkaupum.
Um 100% starf er að ræða og farið er með umsóknir sem trúnaðarmál.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala, ráðgjöf og þjónusta til fagfólks og viðskiptavina
- Tilboðsgerð og eftirfylgni með sölu og tilboðum
- Eftirfylgni sértækra pantana
- Samskipti við aðrar deildir Fagkaupa
- Önnur tilfallandi verkefni útibús
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla í rafiðngreinum er skilyrði
- Menntun á sviði rafbúnaðar er kostur
- Þjónustulund og samskiptahæfni
- Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
- Reynsla af sölustörfum er kostur
- Stundvísi, frumkvæði og áreiðanleiki.
- Góð íslenskukunnátta
- Snyrtimennska
Fríðindi í starfi
- Frístundastyrkur
- Samgöngustyrkur
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Öflugt félagslíf og virkt starfsmannafélag
- Árlegt heilsufarsmat
Utworzono ofertę pracy26. August 2026
Termin nadsyłania podań7. October 2026
Znajomość języków
islandzkiWymagane
AngielskiWymagane
Lokalizacja
Óseyri 1A, 603 Akureyri
Rodzaj pracy
Kompetencje
InicjatywaAmbicjaElektronikaDystrybucja energii elektrycznejMechanika elektrycznaElektrykaElektrykaSprzedażMechanikaNastawienie do klienta
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe
Więcej ofert pracy (1)
Podobne oferty pracy (12)

Skipuleggjandi viðhaldsverkefna
Rio Tinto á Íslandi

Vélvirki, vélstjóri
Stálorka

Tæknimaður óskast
Lyftulausnir ehf.

Sölufulltrúi 66° Norður Miðhrauni
66°North

Fullt Starf í Versluninni Sportís
Sportís ehf

Söluráðgjafi í grófvöru til fagaðila
Byko

Sölumaður nýrra bíla Leapmotor, Jeep, RAM, Fiat atvinnubílar
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Verkstæði
EAK ehf.

Söluráðgjafi óskast í S.Guðjónsson
S. Guðjónsson

Innrammari / sölumaður
Innrammarinn ehf.

Viltu spennandi hlutastarf í úthringingum?
Símstöðin ehf

Starfsmaður í steypuþjónustu
Jarðboranir