
Steypustöðin
Steypustöðin var stofnuð árið 1947 og eru aðalstöðvar félagsins á Malarhöfða 10 Reykjavík.
Steypustöðin er með útibú á nokkrum stöðum eins og Hafnarfirði, Selfossi, Helguvík, Borgarnesi og Þorlákshöfn ásamt tveimur færanlegum Steypustöðvum.
Eins og nafnið gefur kynna til er meginstarfssemi félagsins framleiðsla og afhending á steypu. Félagið rekur einnig helluverksmiðju, flotbíla fyrir flotmúr, múrverslun, efnisvinnslu og stærstu einingaverksmiðju landsins í Borgarnesi.
Hjá félaginu starfa nú um 300 starfsmenn

Sérfræðingur í Mannauðsmálum
Steypustöðin leitar að jákvæðum og metnaðarfullum einstakling í starf sérfræðings á mannauðssviði. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf fyrir drífandi einstakling, þar sem þú færð tækifæri til að móta mannauðsmál og efla starfsfólk í daglegum verkefnum. Við leggjum áherslu á að skapa framsækinn vinnustað þar sem stutt er vel við starfsfólk og stjórnendur.
Við hvetjum öll kyn til þess að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ráðningar og móttaka nýliða.
- Yfirsýn og umsjón með fræðslu- og þjálfunarmöguleikum starfsfólks.
- Eftirfylgni með niðurstöðum vinnustaðagreininga og umsjón með menningartengdum verkefnum sem snúa að starfsanda og heilbrigðri vinnustaðamenningu.
- Ráðgjöf og stuðningur við starfsfólk í mannauðstengdum málum.
- Umsjón með innri vef - Workplace og starfsmannavef Kjarna
- Úrvinnsla gagna, miðlun niðurstaðna og upplýsingagjöf þegar við á m.a. með fréttum á innri vef stofnunarinnar.
- Innri markaðssetning og auglýsingagerð.
- Þátttaka í stefnumótun í mannauðsmálum, nýsköpun og stafrænum umbreytingum ferla.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólagráða sem nýtist í starfi
- Reynsla af mannauðstengdum verkefnum
- Þekking á vinnulöggjöf og kjarasamningum
- Ástríða fyrir fólki, mannauðsmálum og menningu fyrirtækja
- Áhugi á fræðslumálum og starfsþróun starfsfólks
- Framúrskarandi samskipta, skipulags og tölvufærni
- Góð tungumálakunnátta, mikill kostur að tala og skrifa pólsku og íslensku
- Frumkvæði, drifkraftur og sjálfstæði í starfi
Fríðindi í starfi
- Hádegismatur
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni
- Námskeið og fræðsla
- Líkamsræktarstyrkur
- Jákvætt og hvetjandi vinnuumhverfi
Utworzono ofertę pracy4. May 2026
Termin nadsyłania podań17. May 2026
Znajomość języków
islandzkiWymagane
AngielskiWymagane
PolskiOpcjonalnie
Lokalizacja
Malarhöfði 10, 110 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
InicjatywaAmbicjaRekrutacjaSamodzielność w pracyOrganizacja
Zawody
Tagi zawodowe
Więcej ofert pracy (5)
Podobne oferty pracy (10)

Blaðamaður á Viðskiptablaðinu
Viðskiptablaðið

Náms- og starfsráðgjöf í öflugu fagteymi
Þekkingarnet Þingeyinga

Lögfræðingur
Reitir

Ávísun á farsæld - Verkefnastjóri nýsköpunar í þágu barna
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum

Deildarstjóri í búsetuþjónustu Akraneskaupstaðar
Akraneskaupstaður

Félagsráðgjafi - Heilsugæslan Árbæ
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Verkefnafulltrúi hjá Hjálparsíma Rauða krossins 1717
Rauði krossinn á Íslandi

Löglærður fulltrúi
Lögfræðistofa Selfoss

Sálfræðingur - Fangelsismálastofnun
Fangelsismálastofnun ríkisins

Deildarstjóri faghópa á barna- og unglingageðdeild
Landspítali