APRÓ
APRÓ
APRÓ

Sérfræðingur í hugbúnaðarprófunum (QA)

Hefur þú gott auga fyrir gæðum?

APRÓ leitar að nákvæmum og skipulögðum einstaklingi í starf sérfræðings í hugbúnaðarprófunum (e. QA Specialist). Starfið er fjölbreytt og spannar bæði hefðbundið gæðaeftirlit sem og prófanir á kerfum sem nýta gervigreind – allt í nánu samstarfi við hagaðila innanhúss. Viðkomandi mun eiga virkan þátt í að þróa gæðaferla og innleiða sjálfvirkar prófanir en jafnframt kanna hvernig gervigreind getur nýst í sjálfum prófunarferlunum.

Viðkomandi verður hluti af þróunarteymi þar sem samvinna og þekkingarmiðlun skiptir sköpum. Hjá APRÓ vinnum við að hönnun og þróun öflugra hugbúnaðarkerfa sem mæta þörfum ólíkra rekstraraðila – þar sem öryggi, framúrskarandi notendaupplifun og áreiðanleiki eru í forgrunni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Gæðaeftirlit og prófanir á hugbúnaðarkerfum – bæði hefðbundnum og þeim sem nýta gervigreind
  • Þátttaka í hönnun, innleiðingu og viðhaldi á sjálfvirku prófunarumhverfi

  • Samvinna við forritara við gerð og framkvæmd skipulagðra prófunaráætlana

  • Greining, skráning og eftirfylgni galla og villna í hugbúnaði

  • Skoða hvernig gervigreind getur nýst í prófunarferlum og innleiðing slíkra verkfæra þar sem við á
  • Aðstoð við mótun og skráningu á gæðaferlum og verklagsreglum

  • Stuðningur við að efla gæðamiðaða menningu innan APRÓ

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Marktæk reynsla af gæðaferlum og prófunum í hugbúnaðarþróun

  • Hagnýt reynsla af sjálfvirkum prófunum

  • Hæfni til að skipuleggja og framkvæma bæði handvirkar og sjálfvirkar prófanir

  • Áhugi á gervigreind og hvernig hún nýtist í hugbúnaðarþróun
  • Sjálfstæð vinnubrögð, nákvæmni og áreiðanleiki í afhendingu

  • Góð enskukunnátta – íslenska er kostur en ekki skilyrði

Fríðindi í starfi
  • Kaupréttaráætlun
  • Sveigjanlegur vinnutími
  • Árlegur heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Mötuneyti, drykkir og snarl á vinnustað
  • Starfsmannafélag og reglulegir viðburðir
Utworzono ofertę pracy7. May 2026
Termin nadsyłania podań18. May 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Opcjonalnie
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.RzetelnośćPathCreated with Sketch.Sztuczna inteligencjaPathCreated with Sketch.Testowanie oprogramowaniaPathCreated with Sketch.PrecyzjaPathCreated with Sketch.Interfejs użytkownikaPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.Automatyczne testowaniePathCreated with Sketch.Organizacja
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe