FSRE
FSRE

Sérfræðingur í fjármálum - Financial controller

Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir (FSRE) leitar að metnaðarfullum og gagnadrifnum einstaklingi með umfangsmikla þekkingu á uppgjörum í starf leiðandi sérfræðings á sviði fjármála- og stafrænna innviða.

FSRE rekur eitt af stærstu fasteignafélögum landsins auk þess að bera ábyrgð á og stýra uppbyggingu innviða og aðstöðu fyrir ríkisaðila. Fjárhagslegt umfang nemur um 30 milljörðum á ári og skiptist í þrjár einingar; bókhalds- og uppgjörsþjónusta framkvæmdaverkefna, innheimta leigu og rekstur eigna auk reksturs FSRE.

Um er að ræða leiðandi hlutverk í krefjandi umhverfi sem krefst mikilla samskipta við starfsfólk, viðskiptavini og birgja. Í því felst tækifæri til að þróa áfram umbótaverkefni og sjálfvirknivæðingu bókhaldsferla.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Undirbúningur fjárhagsuppgjöra í samvinnu við fjármálastjóra
  • Skýrslugerð fyrir innri og ytri hagsmunaaðila
  • Undirbúningur og framkvæmd innra eftirlits
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði fjármála, reikningshalds eða skyldum greinum. Framhaldsmenntun er kostur.
  • Reynsla af uppgjörsvinnu og fjármálastjórnun er skilyrði.
  • Þekking á lögum um opinber fjármál, innra eftirliti og reikningsskilastöðlum.
  • Hæfni í greiningu fjárhagsupplýsinga og framsetningu gagna.
  • Frumkvæði, metnaður, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð.
  • Ríkir samskiptahæfileikar, jákvætt og lausnamiðað viðhorf.
  • Mjög góð tölvufærni, reynsla í skýrslugerð í PowerBi er mikill kostur.
  • Góð færni í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli.
Utworzono ofertę pracy9. May 2025
Termin nadsyłania podań21. May 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Rodzaj pracy
Środowisko pracy
Zawody
Oznaczenia