
ICEWEAR
Icewear er íslenskt útivistarvörumerki og á sögu allt aftur til ársins 1972.
Vörulína Icewear er mjög stór og samanstendur af fjölbreyttu úrvali af útivistarfatnaði, ullarvörum og helstu fylgihlutum til útivistar fyrir bæði börn og fullorðna.
Allar vörur Icewear eru hannaðar á Íslandi fyrir íslenskar aðstæður.
Icewear leggur ávalt mikið upp úr sanngjörnu verði, fjölbreyttu úrvali og góðri þjónustu enda er útivist fyrir alla.
Verslanir Icewear eru í dag 23 talsins og eru staðsettar um land allt undir merkjum Icewear, Icewear Magasín og Icemart. Þá er vefverslun Icewear mjög vinsæl og selur út um allan heim.
Sjá vefsíðu Icewear: www.icewear.is
Helstu vöruflokkar Icewear eru útivistarfatnaður, ullarvörur og minjagripir.
Verslanir Icewear eru staðsettar í Reykjavík, Akureyri, Kópavogi, Vestmannaeyjum, Þingvöllum og við Goðafoss og í Vík í Mýrdal ásamt mjög öflugri vefverslun.
Fyrirtækið hefur verið ört vaxandi og hjá Icewear starfa í dag um 280 manns.
Gildi Icewear eru samskipti, metnaður, ánægja. Unnið er með þau i daglegum störfum og áhersla lögð á að skapa skemmtilegan og spennandi vinnustað.
Þín útivist Þín ánægja

Sérfræðingur í bókhaldi og launavinnslu
Icewear óskar eftir að ráða sérfræðing í bókhaldi og launavinnslu til starfa á skrifstofu félagsins í Garðabæ. Helstu verkefni eru umsjón og vinnsla launa, færsla bókhalds, afstemmingar og önnur fjölbreytt verkefni í ört stækkandi fyrirtæki. Unnið er með Microsoft Dynamics 365 Business Central og H3 launakerfi og er æskilegt að umsækjandi hafi þekkingu og reynslu af þeim kerfum.
Um er að ræða framtíðarstarf og æskilegt að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til 10. ágúst n.k. en áhugasamir eru hvattir til að sækja um strax þar sem unnið verður úr umsóknum jafn óðum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón, vinnsla og bókun launa.
- Færsla bókhalds
- Samskipti við starfsmenn og birgja
- Afstemmingar og eftirfylgni
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af færslu bókhalds
- Reynsla af launavinnslum
- Þekking á Microsoft Dynamics 365 Business Central
- Þekking á H3 launakerfi
- Færni í mannlegum samskiptum
- Starfið krefst nákvæmni, skipulags og sjálfstæðra vinnubragða
- Góð tæknikunnátta, þar sem lögð er áhersla á sjálfvirknivæðingu bókhalds og vinnslu launa
Utworzono ofertę pracy22. July 2025
Termin nadsyłania podań10. August 2025
Znajomość języków

Wymagane

Wymagane
Lokalizacja
Suðurhraun 10, 210 Garðabær
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe
Więcej ofert pracy (7)
Podobne oferty pracy (10)

Bókari 60-80% starfshlutfall
ICEWEAR

Accountant/Bókari
Alvotech hf

Bókhald - Laun - Fjármál
Rafkaup

Aðalbókari óskast
Birtingahúsið

BÓKHALD aðstoðarmanneskja - Ferðaskrifstofa
Eskimos Iceland

Bókari / skrifstofustarf
Vélaverkstæði Þóris ehf.

Sérfræðingur í launavinnslu
Aðalbókarinn ehf

Liðsmaður í bókhaldsdeild
Iceland ProServices

Bókhald
Hagvangur

Leiðtogi í launaþjónustu / People Solutions Supervisor
Alcoa Fjarðaál