

Reynslumikill sérfræðingur í launagreiningum
Traust og framsækið fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ráða reynslumikinn sérfræðing í launagreiningum innan samstæðu félagsins. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem viðkomandi veitir stjórnendum ráðgjöf og leiðbeiningar gagnvart launakerfi og launasetningu auk þess að taka saman lykiltölur og greiningar fyrir framkvæmdastjóra mannauðs og aðra stjórnendur.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Ráðgefandi hlutverk við launadeild vegna kjarasamninga, markaðslauna og annarra mála
- Umsjón með áætlunum á launakostnaði, stöðugildum og almennum starfsmannakostnaði
- Ábyrgð á skýrslugerð og upplýsingagjöf til framkvæmdastjóra
- Veitir stjórnendum stuðning vegna starfslýsinga starfsfólks hjá samstæðunni
- Almennar umbætur tengdar launakerfi og kjaramálum
- Ráðgjöf til stjórnenda gagnvart launakjörum starfsfólks
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Haldbær reynsla á sviði launamála og greininga
- Góð þekking á kjarasamningum og markaðslaunum
- Þekking og/eða reynsla af áætlunargerð á launakostnaði, stöðugildum og almennum starfsmannakostnaði
- Mjög gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
- Mjög góð samskiptahæfni, þjónustulund, jákvæðni og sveigjanleiki
- Afburða tölvuhæfni, nákvæmni, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Teymisvitund, frumkvæði og faglegur metnaður
Umsóknarfrestur er til og með 16. febrúar 2026, en unnið er úr umsóknum jafnóðum og þær berast. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Svava Sandholt ([email protected]).
islandzki
Angielski










