Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á Bifröst

Rannsóknarfulltrúi

Við leitum að öflugum og þjónustuliprum einstaklingi í 50% starf rannsóknarfulltrúa við Háskólann á Bifröst.

Hlutverk rannsóknarfulltrúa er m.a. að veita fræðafólki og rannsóknarverkefnum háskólans stuðning og faglega aðstoð s.s. við þróun og utanumhald umsókna um rannsóknarstyrki. Viðkomandi þarf að búa yfir góðri skipulagshæfni, yfirsýn og áhuga á rannsóknastarfi í nútímalegu og sveigjanlegu umhverfi. Starfið felur í sér náið samstarf við akademískt starfsfólk, stjórnsýslu og innlenda og erlenda samstarfsaðila og veitir kjörið tækifæri til að taka virkan þátt í uppbyggingu og framþróun rannsókna innan háskólans.

Háskólinn á Bifröst er framsækinn háskóli sem hefur verið leiðandi í uppbyggingu stafræns fjarnáms á háskólastigi hér á landi síðastliðin 25 ár. Gildi háskólans eru samvinna, frumkvæði og fagmennska og eru þau höfð að leiðarljósi. Háskólinn er með starfsstöðvar bæði í Reykjavík og á Hvanneyri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með rannsóknarverkefnum, þar á meðal skýrslugerð og samvinna á milli rannsakenda og stoðþjónustu.
  • Skipulagning vinnustofa, málstofa og viðburða sem tengjast rannsóknum.
  • Öflun og umsýsla gagna er varðar rannsóknarvirkni / rannsóknarstarfsemi og árangur.
  • Skjölun á rannsóknar- og nýsköpunarstarfsemi háskólans, reglum og stefnum.
  • Aðstoða kennara og fræðimenn með ársskýrslur varðandi rannsóknir og önnur rannsóknartengd verkefni.
  • Aðkoma að kynningum á rannsóknarstarfi háskólans á heimasíðu háskólans, í rannsóknaupplýsingakerfinu (IRIS) og á rannsóknar-/nýsköpunarviðburðum.
  • Umsjón með innri og ytri rannsóknarstyrkjum og tengdum umsóknarferlum.
  • Aðstoð við áætlanagerð rannsóknarverkefna, gerð fjárhagsáætlana og undirbúning styrkumsókna.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistaranám í viðeigandi fræðigreinum (t.d. stjórnsýslu, félagsvísindum eða hugvísindum). Doktorsgráða er kostur.
  • Reynsla af rannsóknastjórnun, verkefnastjórnun eða gerð styrkumsókna er æskileg.
  • Reynsla af rannsóknum og alþjóðlegum verkefnum er æskileg.
  • Mjög góð skipulags- og samskiptahæfni.
  • Sjálfstæð vinnubrögð og hæfni til að vinna í teymi.
  • Góð íslensku og ensku kunnátta bæði í ræðu og riti.
Utworzono ofertę pracy16. May 2025
Termin nadsyłania podań1. June 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Hvanneyri 133853, 311 Borgarnes
Borgartún 18, 105 Reykjavík
Rodzaj pracy
Środowisko pracy
Zawody
Oznaczenia