
Bjarkarhlíð - miðstöð fyrir þolendur ofbeldis
Bjarkarhlíð er þjónustumiðstöð fyrir þolendur ofbeldis af öllum kynjum, 18 ára og eldri. Þar gefst einstaklingum kostur á stuðningi og ráðgjöf hjá ráðgjöfum, lögreglu og lögfræðingum þeim að kostnaðarlausu og á þeirra forsendum. Bjarkarhlíð er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, félags- og húsnæðismálaráðuneytis, dómsmálaráðuneytis, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, Samtaka um kvennaathvarf, Stígamóta og Kvennaráðgjafarinnar.
Okkur vantar liðsauka.
Starfslýsing: Ráðgjafi í Bjarkarhlíð
Staðsetning: Bjarkarhlíð við Bústaðarveg, 108 Reykjavík
Starfshlutfall: 100%
Bjarkarhlíð leitar að öflugum og samhentum einstaklingi til að sinna hlutverki ráðgjafa í spennandi og fjölbreyttu verkefni. Þetta er fullt starf með starfsstöð í Bjarkarhlíð í Reykjavík.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Veita ráðgjafarþjónustu í Bjarkarhlíð, þar sem skjólstæðingar fá stuðning og ráðgjöf vegna ofbeldis.
- Vera í markvissu og skilvirku samstarfi við fagaðila og aðra þá sem koma að þjónustu við þolendur ofbeldis.
- Taka þátt í daglegri umsýslu miðstöðvarinnar, s.s. móttöku þjónustuþega, símsvörun og að svara tölvupóstum.
- Taka virkan þátt í starfsemi Bjarkarhlíðar og stuðla að framþróun þjónustunnar.
Hæfniskröfur:
- Reynsla af ráðgjafarstörfum er æskileg.
- Góð samskipta- og skipulagshæfni.
- Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi.
- Vilji og geta til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum tengdum ráðgjafarþjónustu.
- Þekking á þjónustu fyrir þolendur ofbeldis er kostur.
Bjarkarhlíð býður upp á:
- Hvetjandi og faglegt vinnuumhverfi.
- Tækifæri til að taka þátt í mikilvægu samfélagsverkefni.
- Samstarf með öflugu teymi fagfólks.
- Gildi Bjarkarhlíðar eru: Virðing - Jákvæðni - Hugrekki - Fagmennska.
Ef þú vilt leggja þitt af mörkum til mikilvægs samfélagslegs málefnis og vinna í hvetjandi umhverfi, þá er þetta starfið fyrir þig!
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Utworzono ofertę pracy11. May 2026
Termin nadsyłania podań25. May 2026
Znajomość języków
islandzkiWymagane
AngielskiWymagane
Lokalizacja
v/Bústaðarveg
Rodzaj pracy
Kompetencje
ProfesjonalnośćInicjatywaUczciwośćBez kryminalnej przeszłościPozytywne nastawienieInterakcje międzyludzkieAmbicjaSumiennośćSamodzielność w pracyOrganizacjaPraca zespołowapraca pod presjąNastawienie do klienta
Zawody
Tagi zawodowe
Podobne oferty pracy (12)

Náms- og starfsráðgjöf í öflugu fagteymi
Þekkingarnet Þingeyinga

Hjúkrunarfræðingur – spennandi tækifæri
Húðlæknastöðin

Deildarstjóri – Sóltún Sólvangi hjúkrunarheimili
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtar
Landspítali

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á almenna endurhæfingardeild aldraðra
Landspítali

Heimahjúkrun - skemmtileg sumarstörf - hjúkrunarfræðingar
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Ert þú hjúkrunarfræðingurinn sem við leitum eftir?
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur við umsjón útskrifta á hjarta-, lungna-, augnskurðdeild og nýrnalækningadeild
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á HSU Selfossi - sumarstarf með möguleika á áframhaldandi ráðningu
Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Hjúkrunarfræðingur
VÍS

Hjúkrunarfræðingar á taugalækningadeild
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur - hjúkrunarheimilisdeild á Skjól hjúkrunarheimili
Skjól hjúkrunarheimili