Útlendingastofnun
Útlendingastofnun
Útlendingastofnun

Móttökufulltrúi

Útlendingastofnun leitar að þjónustulunduðum móttökufulltrúa til starfa hjá stofnuninni. Verksvið móttökufulltrúa er fjölbreytt, t.a.m. afgreiðsla og ráðgjöf til þjónustuþega stofnunarinnar, símsvörun, netspjall, umsjón með myndatökum, fjölbreytt bakvinnsla og önnur tilfallandi verkefni. Móttökufulltrúi heyrir undir teymisstjóra.

Útlendingastofnun er spennandi vinnustaður á fleygiferð í stafrænni vegferð. Hjá stofnuninni starfar um 110 manna samhentur hópur á fjórum sviðum. Umfangsmesti þátturinn í starfsemi stofnunarinnar er útgáfa dvalarleyfa. Útlendingastofnun afgreiðir umsóknir um dvalarleyfi, hvort sem um er að ræða dvalarleyfi á grundvelli atvinnuþátttöku, fjölskyldusameiningar, námsvistar eða vistráðningar. Þá afgreiðir stofnunin einnig umsóknir um ríkisborgararétt og umsóknir um alþjóðlega vernd. Lögð er rík áhersla á að vinnustaðurinn sé fjölskylduvænn og að starfsandi sé til fyrirmyndar. Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu og sveigjanlegan vinnutíma með 36 stunda vinnuviku.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Afgreiðsla og ráðgjöf til þjónustuþega
  • Símsvörun
  • Umsjón með myndatökum
  • Þátttaka í gerð og þróun verkferla
  • Bakvinnsla
  • Starfa í samræmi við stefnur og markmið stofnunarinnar
  • Þátttaka í teymisvinnu
  • Netspjall
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Mjög góð færni í mannlegum samskiptum og þjónustulund
  • Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti er skilyrði
  • Reynsla af þjónustustarfi er mikill kostur
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Kunnátta í einu norðurlandatungumáli
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Utworzono ofertę pracy9. September 2026
Termin nadsyłania podań21. September 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Dalvegur 18, 201 Kópavogur
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.AmbicjaPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.Nastawienie do klienta
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe