Reykjanesbær
Reykjanesbær
Reykjanesbær

Menningar- og þjónustusvið - Þjónustufulltrúi sumarstarf

Reykjanesbær óskar eftir jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingi í starf þjónustufulltrúa í þjónustuver. Leitað er að öflugum liðsfélaga sem brennur fyrir faglegri þjónustu og getur tileinkað sér sveigjanleg og skilvirk vinnubrögð í lifandi og síbreytilegu umhverfi.

Starf þjónustufulltrúa felst í almennri þjónustu við bæjarbúa, meðal annars með upplýsingagjöf um þjónustu Reykjanesbæjar og opinberra stofnana ásamt stoðþjónustu við ýmsar deildir bæjarins. Aðstoð við bæjarbúa vegna sjálfsafgreiðslulausna og stafrænnar þjónustu er einnig mikilvægur hluti starfsins.

Um er að ræða 100% starf á tímabilinu 15. maí – 15. ágúst eða eftir samkomulagi. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og leitum við að einstaklingi sem endurspeglar þessi gildi í sínum störfum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn afgreiðsla og þjónusta
  • Móttaka, skráning og svörun erinda í síma, netspjalli og tölvupósti
  • Upplýsingagjöf til bæjarbúa, gesta og starfsmanna
  • Leiðbeiningar og aðstoð við notkun sjálfsafgreiðslulausna og stafrænna þjónustuleiða
  • Skráningar í tölvukerfi
  • Stoðþjónusta við önnur svið
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af skrifstofustörfum æskileg
  • Góð færni í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli
  • Góð almenn tölvukunnátta og geta til að tileinka sér ný kerfi
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
  • Þjónustulund, jákvætt viðmót og nákvæm vinnubrögð
  • Hæfni til að aðlagast breytingum í starfsumhverfi
Fríðindi í starfi
  • Bókasafnskort
  • Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
  • Gjaldfrjáls aðgangur í sund
  • Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Utworzono ofertę pracy21. April 2026
Termin nadsyłania podań28. April 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Tjarnargata 12, 230 Reykjanesbær
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.RecepcjaPathCreated with Sketch.AmbicjaPathCreated with Sketch.Administracja publicznaPathCreated with Sketch.Komunikacja telefonicznaPathCreated with Sketch.Komunikacja przez e-mailPathCreated with Sketch.SumiennośćPathCreated with Sketch.Nastawienie do klienta
Zawody
Tagi zawodowe