
Kerecis
Kerecis (www.kerecis.com) er líftæknifyrirtæki sem er frumkvöðull í notkun á roði og fitusýrum í lækningartilgangi. Vörur Kerecis eru notaðar til meðhöndlunar á margskonar vefjaskaða s.s. þrálátum sárum, brunasárum, munnholssárum og til margskonar uppbyggingar á líkamsvef. Gildi Kerecis byggja á samúð, heiðarleika og áhugasemi.
Um 600 starfsmenn starfa hjá fyrirtækinu á Ísafirði, í Reykjavík, Sviss, Þýskalandi og Bandaríkjunum. Sölumenn Kerecis selja vörur fyrirtækisins beint til heilbrigðisstofnana á Íslandi, á Þýskumælandi mörkuðum og Bandaríkjunum. Í öðrum heimshlutum er selt í gegnum dreifingaraðila.
Kerecis er það fyrirtæki sem vex hraðast í heiminum á sviði meðferðar á vefjaskaða. Tækni félagsins hefur vakið athygli á heimsvísu og á félagið í samstarfi um þróun og notkun á tækni þess víða um heim m.a. við bandarískar varnarmálastofnanir. Í Bandaríkjunum eru vörur Kerecis m.a. notaðar af mörgum stærstu spítölum landsins.

Mannauðs- og skrifstofufulltrúi
Langar þig að starfa í fjölbreyttu hlutverki þar sem mannauðsmál og skrifstofuumsjón koma saman?
Kerecis leitar að skipulögðum, þjónustulunduðum og jákvæðum einstaklingi í starf skrifstofu- og mannauðsfulltrúa á skrifstofu fyrirtækisins í Reykjavík.
Í þessu fjölbreytta starfi gegnir þú mikilvægu hlutverki í daglegum mannauðsmálum fyrirtækisins og stuðlar að jákvæðri upplifun starfsfólks allt frá ráðningu til starfsloka. Jafnframt hefur þú umsjón með daglegri skrifstofuþjónustu og stuðlar að því að vinnuumhverfið sé faglegt, vel skipulagt og skilvirkt.
Helstu verkefni og ábyrgð
Mannauðsmál
- Koma að ráðningarferli og móttöku nýs starfsfólks.
- Halda utan um starfsmannagögn og uppfæra upplýsingar í mannauðs- og tímaskráningarkerfi.
- Sjá um samskipti og upplýsingagjöf til starfsfólks varðandi mannauðs- og launamál.
- Aðstoða við undirbúning launavinnslu
- Vinna skýrslur og aðstoða við eftirfylgni með fræðslu og markmiðasetningu.
- Styðja við innleiðingu mannauðs- og þróunarverkefna.
- Koma að breytingum á ráðningarsambandi starfsmanna og flutningi milli landa.
Skrifstofuumsjón
- Taka á móti gestum og sinna daglegri þjónustu á skrifstofu.
- Svara fyrirspurnum sem berast í síma.
- Tryggja að vinnuaðstaða starfsfólks sé í góðu ástandi.
- Samstarf við upplýsingatækni-, öryggis- og fasteignateymi vegna daglegs reksturs skrifstofunnar.
- Panta og hafa umsjón með skrifstofuvörum og samskiptum við þjónustuaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi.
- Reynsla af mannauðsmálum og/ eða skrifstofuumsjón er kostur
- Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér nýjungar
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt ríkri þjónustulund.
- Góð enskukunnátta í ræðu og riti
Fríðindi í starfi
Við bjóðum ....
- Fjölbreytt og áhugavert starf í vaxandi alþjóðlegu fyrirtæki.
- Tækifæri til að hafa áhrif og taka þátt í þróun mannauðsmála.
- Skemmtilegt og metnaðarfullt starfsumhverfi.
- Náið samstarf við öflugt teymi bæði á Íslandi og erlendis.
- Tækifæri til starfsþróunar og aukinnar ábyrgðar.
Utworzono ofertę pracy23. September 2026
Termin nadsyłania podań2. October 2026
Znajomość języków
AngielskiWymagane
islandzkiWymagane
Lokalizacja
Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe
Więcej ofert pracy (2)
Podobne oferty pracy (12)

Bókari,launafulltrúi
Vörukaup ehf

Skrifstofustjóri
Lyfjafræðingafélag Íslands

Öflug manneskja í skrifstofuvinnu
Netkerfi og tölvur ehf.

Þjónusturáðgjafi
Teya Iceland

Verkefnastjóri NASF á Íslandi
NASF á Íslandi

Frábært skrifstofustarf í boði -Skrifstofa stéttarfélaganna-
Framsýn,stéttarfélag

Operations Manager
BusTravel Iceland ehf.

Sölumaður - Prívat lúxusferðir
Deluxe Iceland

VR á Egilsstöðum
VR

Sölu- og ferðaráðgjafi
Iceland ProTravel

Sérfræðingur í mannauðsteymi
Securitas

Framkvæmdastjóri mannauðs - Heilbrigðisstofnun Austurlands
Heilbrigðisstofnun Austurlands