

Lyfja Lágmúla - Hjúkrunarfræðingur í hjúkrunarþjónustu
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi í hjúkrunarþjónustu Lyfju í Lágmúla. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf í líflegu umhverfi þar sem aðaláherslan er á faglega þjónustu og ráðgjöf í heilsueflingu og forvörnum.
Hlutverk og ábyrgð:
- Þjónusta og ráðgjöf á heilsu- og hjúkrunarvörum, s.s. stómavörum, þvagleggjum og næringardrykkjum
- Hjúkrunarþjónusta, þar á meðal heilsufarsmælingar, sáraumbúðaskipti, sprautugjöf og árstíðabundnar bólusetningar
- Eyrnaskoðun og eyrnahreinsun ásamt einföldum heyrnarskimunum
- Ráðgjöf og fræðsla um heilsueflingu og forvarnir
- Önnur tilfallandi verkefni tengd hjúkrunarþjónustu
Hvaða hæfni þarft þú að hafa?
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Þekkingu og áhuga á heilsueflingu og forvarnarstarfi
- Góða samskiptahæfni og ríka þjónustulund
- Getu til að vinna í teymi
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
Starfið:
Vinnutími er 8:00 – 16:00 alla virka daga eða skv. samkomulagi.
Hvers vegna Lyfja?
Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að lengja líf og bæta lífsgæði landsmanna. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu, heilsueflingu og stöðuga nýsköpun.
Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu, markvissa starfsþróun og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
Lyfja rekur 45 apótek og útibú víðs vegar um landið, sem gefur starfsfólki kost á fjölbreyttum og spennandi tækifærum, hvar sem er á landinu.
Nánari upplýsingar um starfið veita:
Elínborg Kristjánsdóttir, lyfsali Lyfju Lágmúla, [email protected] og
Hrafnkatla Valgeirsdóttir, yfirhjúkrunafræðingur, [email protected]
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.




















