Lögfræðingur á eftirlits- og rannsóknasviði Skattsins
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum lögfræðingi með brennandi áhuga á skattamálum til að ganga til liðs við viðurlagadeild eftirlits- og rannsóknasviðs Skattsins í höfuðstöðvum þess að Katrínartúni í Reykjavík. Í viðurlagadeild starfar samhentur hópur sérfræðinga sem tekst af fagmennsku á við fjölbreytt og krefjandi verkefni á sviði skattaréttar, refsiréttar og stjórnsýslu.
Helstu verkefni er framkvæmd refsimeðferða vegna ætlaðra brota lögaðila og einstaklinga sem skattrannsókn hefur leitt í ljós og endurálagning skatta og gjalda í kjölfar þeirra rannsókna. Þá felast í starfinu veiting umsagna fyrir yfirskattanefnd í eftirlits- og rannsóknamálum, undirbúningur rannsóknaraðgerða, rekstur mála fyrir dómstólum, þ. á m. vegna rannsóknaraðgerða og kyrrsetninga auk úrlausna ýmissa lögfræðilegra álitaefna.
- Háskólamenntun á sviði lögfræði (lágmarksmenntun er bakkalár gráða, meistaragráða er æskileg).
- Þekking og/eða reynsla á sviði skattaréttar, refsiréttar og stjórnsýsluréttar.
- Góð greiningarhæfni og færni í miðlun upplýsinga.
- Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
- Gott vald á íslensku í töluðu og rituðu máli. Önnur tungumálakunnátta er kostur.
- Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð.
- Frumkvæði, metnaður og geta til að vinna undir álagi.
- Samstarfshæfni sem og reynsla og færni í teymisvinnu.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Hreint sakavottorð.