
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur verið leiðandi afl í íslensku tónlistarlífi í 70 ár og hefur um árabil verið í fremstu röð hljómsveita á Norðurlöndum. Hljómsveitin hefur fengið afbragðs dóma jafnt fyrir hljóðritanir sínar sem og tónleika heima og erlendis. Hún heldur um 100 tónleika á hverju starfsári, m.a. áskriftartónleika með heimsþekktum stjórnendum og einleikurum, en á einnig samstarf við listafólk úr öðrum greinum tónlistar. Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús, er heimili Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Starfsmannafjöldi SÍ er um 100 manns. Nánari upplýsingar á sinfonia.is.
Listrænn ráðgjafi
Sinfóníuhljómsveit Íslands (SÍ) auglýsir laust til umsóknar starf listræns ráðgjafa í 50-75% starfshlutfall (umsemjanlegt). Við leitum að skapandi, skipulögðum og öflugum einstaklingi með breiða þekkingu og ástríðu fyrir tónlist og tónlistarlífi á Íslandi sem og erlendis.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á mótun og framkvæmd listrænnar stefnu SÍ.
- Vinnur tillögur að dagskrá hljómsveitarinnar með listrænum stjórnanda og framkvæmdateymi SÍ.
- Listræn ráðgjöf við listrænan stjórnanda, gestalistamenn og framkvæmdateymi.
- Formennska í verkefnavalsnefnd hljómsveitarinnar.
- Aðkoma að samningagerð við listafólk.
- Yfirferð á raddskrám tónverka.
- Ritun texta um verkefni hljómsveitarinnar.
- Aðkoma að árlegri starfsáætlun og vinnuáætlun.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Yfirgripsmikil tónlistarþekking með áherslu á sígilda tónlist og samtímatónlist.
- Yfirgripsmikil þekking á starfsemi sinfóníuhljómsveita, hljómsveitarstjórum og einleikurum/einsöngvurum á alþjóðlegum vettvangi.
- Framúrskarandi samskiptahæfni og unun af teymisvinnu.
- Sjálfstæði, drifkraftur og skipulagshæfni í starfi.
- Þekking á starfsemi Sinfóníuhljómsveitar Íslands er kostur.
Utworzono ofertę pracy28. April 2026
Termin nadsyłania podań24. May 2026
Znajomość języków
Brak wymagań językowych
Lokalizacja
Austurbakki 2, 101 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe
Podobne oferty pracy (12)

Álftanesskóli - tónmenntakennari
Garðabær

Verk -og listgreinakennari
Seyðisfjarðarskóli

Píanókennari óskast
Tónmenntaskóli Reykjavíkur

Tónlistarkennari
Sveitarfélagið Strandabyggð

Verkefnastjóri myndlistar, sýninga og viðburða
Menningarstofa

Verkefnastjóri Verkefnastjóri barnamenningar og tónlistar
Menningarstofa

Lausar stöður Leikskólakennara fyrir skólaárið 2026-2027
Leikskólinn Leikholt

Hornkennari í hlutastarfi
Skólahljómsveit Kópavogs

Kennarar í Sandgerðisskóla skólaárið 2026-2027
Suðurnesjabær

Söngkennari - Tónlistarskóli Eyjafjarðar
Tónlistarskóli Eyjafjarðar

Kennarar óskast til starfa í Egilsstaðaskóla
Egilsstaðaskóli

Píanókennari 100% staða
Tónlistarskólinn á Akranesi