
Leikskóli Fjallabyggðar auglýsir eftir deildarstjórum
Leikskóli Fjallabyggðar starfar í tveimur byggðarkjörnum, í Ólafsfirði og á Siglufirði.
Á Leikhólum Ólafsfirði eru 60 nemendur á þremur deildum. Á Leikskálum Siglufirði eru 60-70 nemendur á fimm deildum. Í leikskólanum leggjum við áherslu á nám í gegnum leik og hreyfingu. Einkunnarorð okkar eru Kraftur – Sköpun - Lífsgleði
Lausar eru til umsóknar stöður deildarstjóra við skólann á Siglufirði.
• Leyfisbréf til kennslu
• Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
• Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
• Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
• Stundvísi
• Góð færni í íslensku
• Hreint sakavottorð. Umsækjandi þarf að veita heimild til upplýsingaöflunar úr sakaskrá.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Samninganefndar sveitarfélaga (SNS) og Félags leikskólakennara (FL).
Ef ekki fæst leikskólakennari eða einstaklingur með aðra háskólamenntun sem nýtist í starfi eru aðrar umsóknir teknar til skoðunar og eru þá laun samkvæmt kjarasamninga við Sambands íslenskra sveitarfélaga.
islandzki
Angielski










