Leikskólinn Hlaðhamrar
Leikskólinn Hlaðhamrar
Leikskólinn Hlaðhamrar

Leikskólakennarar/leiðbeinendur óskast á Hlaðhamra

Leikskólinn Hlaðhamrar leitar að leikskólakennara eða uppeldismenntuðu fólki.

Leikskólinn mun flytja í nýtt húsnæði leikskólans Sumarhúsa í Helgafellshverfi í Mosfellsbæ í byrjun ágúst.

Á Hlaðhömrum eru 60 börn á aldrinum 2ja til 5 ára. Sérstakar áherslur í leikskólastarfinu eru gæði í samskiptum og skapandi starf. Er þar fyrst og fremst horft til hugmynda Loris Malaguzzi, stefna sem nefnd hefur verið Reggiostefnan. Markmiðið er að leikskólabörnin öðlist sterka sjálfsvitund, hæfni í samskiptum, skapandi færni og frjóa hugsun. Lykilorð í allri samvinnu og samstarfi Hlaðhamra er virðing.

Leikskólakennari/leiðbeinandi vinnur að uppeldi og menntun barnanna. Fylgist vel með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu og í samræmi við námsskrá skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari eða önnur sambærileg menntun
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
  • Frumkvæði og metnaðurí starfi
  • Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Reynsla í starfi með leikskólabörnum.
Fríðindi í starfi

Full vinnustytting er komin á að jafnaði hættir starfsfólk kl 14:00 á föstudögum, auk þess að fá jólafrí, páskafrí og vetrarfrí líkt og tíðkast í grunnskólum

  • Samgöngustyrkur
  • Líkamsræktarstyrkur
  • Sundkort
  • Forgangur barna í leikskóla
Utworzono ofertę pracy18. June 2025
Termin nadsyłania podań18. July 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Vefarastræti 2-6, 270 Mosfellsbær
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.NauczycielPathCreated with Sketch.AmbicjaPathCreated with Sketch.Praca zespołowa
Zawody
Oznaczenia