Sjúkratryggingar Íslands
Sjúkratryggingar Íslands

Leiðandi sérfræðingur í stafrænni vegferð

Sjúkratryggingar leita að öflugum og metnaðarfullum sérfræðingi til að leiða þróun og innleiðingu stafrænna lausna sem bæta þjónustu og auka skilvirkni í íslenska heilbrigðiskerfinu. Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á nýsköpun í opinberri þjónustu og reynslu af því að stýra fjölbreyttum verkefnum með markvissum og faglegum hætti.

Sjúkratryggingar eru lykilstofnun í íslensku heilbrigðiskerfi sem tryggir réttindi sjúkratryggðra og aðgengi að góðri og hagkvæmri heilbrigðisþjónustu með það markmið að leiðarljósi að vernda heilbrigði og jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu.

Sjúkratryggingar vinna í verkefnamiðuðu vinnuumhverfi þar sem rík áhersla er lögð á góðan aðbúnað, fagmennsku og liðsheild. Boðið er upp á sveigjanlegan vinnutíma auk þess sem starfsfólk nýtur hlunninda á borð við íþróttastyrk og samgöngustyrk vegna vistvænna samgangna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða þróun og innleiðingu stafrænna lausna í samræmi við stefnu stofnunarinnar  
  • Stýra verkefnum frá upphafi til enda, þar með talið framvindueftirliti og áhættustjórnun
  • Greina viðskiptaþarfir og skilgreina tæknilegar lausnir í samstarfi við hagsmunaaðila  
  • Tryggja faglega framkvæmd verkefna með öflugri gæðastjórnun og skilvirkri samvinnu  
  • Viðhalda virku samráði við þjónustuveitendur, notendur og aðra lykilaðila  
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í tölvunarfræði, verkfræði, viðskiptafræði, eða á sambærilegu sviði  
  • Að lágmarki þriggja ára reynsla af sambærilegu starfi 
  • Reynsla af vörustjórnun í hugbúnaðarþróun 
  • Þekking og reynsla af verkefnastjórnunaraðferðum (t.d. Agile, PRINCE2, PMP) 
  • IPMA C- eða D-vottun er kostur
  • Kostur ef umsækjandi hefur þekkingu og / eða reynslu af innleiðingu gervigreindarlausna (t.d. málmódel, sjálfvirk greining, skjalavinnsla eða þjónustubottar) í opinberum kerfum eða heilbrigðisgeiranum 
  • Kostur ef umsækjandi hefur reynslu af hugbúnaðarverkefnum innan heilbrigðisgeirans 
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli  
  • Leiðtogahæfni, frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum 
  • Framúrskarandi samskiptafærni, þjónustulund og lausnamiðuð nálgun
Utworzono ofertę pracy4. June 2025
Termin nadsyłania podań16. June 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Vínlandsleið 16, 113 Reykjavík
Rodzaj pracy
Środowisko pracy
Zawody
Oznaczenia